Innlent

Milljónir leita réttra eigenda

Benedikt Bóas skrifar
Leynast 20 milljónir heima hjá þér?
Leynast 20 milljónir heima hjá þér? Fréttablaðið/Eyþór
Í síðustu viku unnu fjórir Lottóspilarar rúmlega 20 milljónir hver. Vinningshafarnir sem keyptu miðana sína í Happahúsinu og í Kjarval á Kirkjubæjarklaustri hafa gefið sig fram en enn hafa starfsmenn Getspár ekkert heyrt frá vinningshöfunum sem keyptu sína miða hjá Olís í Álfheimum og Shell í Hveragerði.

Vill því Getspá biðja þá sem keyptu sér miða á þessum sölustöðum að kíkja vel á miðana sína og kanna hvort þar leynist 20 milljóna króna Lottóvinningur. Tölurnar voru 5-15-28-37-39.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×