Sport

Gruna Ólympíuverðlaunahafa um að vera orðinn dópsali

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jack Bobridge var vinsæll og virtur hjólreiðakappi.
Jack Bobridge var vinsæll og virtur hjólreiðakappi. Vísir/Getty
Ástralinn Jack Bobridge hefur staðið á verðlaunapalli á tveimur síðustu Ólympíuleikum í London og Ríó en nú eru Ástralir allt annað en stoltir af sínum manni.

Þessi fyrrum heimmeistari  og heimsmethafi í hjólreiðum er mögulega á leiðinni í steininn og það fyrir sölu á eiturlyfjum. BBC segir frá.

Jack Bobridge er enn bara 28 ára gamall en þurfti að hætta keppni í nóvember síðastliðnum vegna liðagigtar.

Bobridge var handtekinn í Perth á miðvikudaginn og á yfir sér fimm kærur fyrir að bæði selja og útvega lyfið MDMA eða alsælu eins og það er oftast kallað.

Hann var handtekinn eftir að lögreglan gerði húsleit bæði heima hjá honum og í æfingasal hans í úthverfi Perth. Bobridge slapp strax út gegn tryggingu en hann er á leiðinni fyrir dómara í næsta mánuði.

Upp komst um þátt Jack Bobridge í viðamikilli rannsókn sem náði yfir alla Perth borg en alls voru 61 manns handtekin og eiturlyf að virði meira en hundrað milljónir íslenskra króna gerð upptæk.

Eiturlyfin voru auk alsælu, methamphetamine, Kókaín og kannabisefni.

Jack Bobridge átti frábæran feril en hann keppti á þremur Ólympíuleikum, vann til þriggja heimsmeistaratitla og vann alls tíu verðlaun á heimsmeistaramótum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×