Fótbolti

Mbappé skoraði í fyrsta leiknum sínum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kylian Mbappé fagnar marki sínu.
Kylian Mbappé fagnar marki sínu. vísir/afp
Kylian Mbappé skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Paris Saint-Germain í kvöld. PSG vann þá 1-5 útisigur á Metz í frönsku úrvalsdeildinni.

Staðan í hálfleik var 1-1. Edinson Cavani kom PSG yfir á 31. mínútu eftir sendingu frá Neymar en Emmanuel Riviere jafnaði metin sex mínútum síðar.

Á 56. mínútu fékk Benoit Assou-Ekotto, varnarmaður Metz, að líta rauða spjaldið og eftir það var eftirleikurinn auðveldur fyrir PSG.

Mbappé kom PSG aftur yfir á 59. mínútu og 10 mínútum síðar skoraði Neymar þriðja mark liðsins.

Cavani og varamaðurinn Lucas Moura bættu svo við mörkum áður en yfir lauk og lokatölur því 1-5, PSG í vil.

Parísarliðið hefur unnið alla fimm leiki sína í frönsku deildinni með markatölunni 19-3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×