Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Leikur Íslands og Kósóvó hefst á Laugardalsvelli klukkan korter í sjö en þar freistar karlalandsliðið í knattspyrnu þess að komast á HM í fyrsta sinn í sögunni. Fjallað verður ítarlega um leikinn í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö og sýnt frá vellinum og samkomu stuðningsmanna í beinni útsendingu.

Í fréttatímanum förum við líka að Hraunfossum, en lögreglan á Vesturlandi stöðvaði nýhafna gjaldtöku þar nú síðdegis vegna almannahættu. Loks lítum við á óhefðbundna listasýningu sem sett var upp í Háskóla Íslands í dag en þar eru almenningsklósett í forgrunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×