Innlent

Mikill munur er á hækkun æfingagjalda á milli íþróttafélaga og greina

Helga María Guðmundsdóttir skrifar
Á morgun er forvarnardagurinn og eins og fram kemur á vefsíðu viðburðarins þá er bent á mikilvægi þess að börn taki þátt í æskulýðsstarfi.

Regluleg hreyfing getur ekki einungis fyrirbyggt offituvandamál og sjúkdóma tengda þeim heldur eru börn og unglingar, sem stunda hreyfingu, jafnan í minni hættu á að ánetjast áfengi og fíkniefnum.

Það að vera í íþróttum eða öðrum tómstundum getur verið mjög kostnaðarsamt. Tökum dæmi. Stúlka fædd 2007 hefur verið í fimleikum í þrjú ár. Árið 2015 kostaði önnin um 38.000 krónur og var þá frístundastyrkurinn 35.000 krónur í Reykjavík. Nú árið 2017 þegar frístundastykrurinn er kominn upp í 50.000 krónur kostar önnin um 63.000 krónur. Ekki má gleyma að frístundastyrkurinn er fyrir allt árið en greiðslan er aðeins fyrir aðra önnina, árgjaldið er því töluvert hærra nú en fyrir tveimur árum því á sama tíma og frístundastyrkurinn hækkaði um tæp 43% þá hækkuðu fimleikagjöldin um rúmlega 64%. Styrkurinn fór því beint í vasa íþróttafélagsins.“

„Markmið með frístundastyrknum er gera foreldrum kleift að þekja meira af kostnaðinum sem fellur yfir allt árið, en auðvitað er möguleiki á því að einhver félög sjái hag í því að hækka gjöldin til samræmis en það er þarna sem foreldrar ættu að hafa augun svolítið opin, segir Þórgnýr Thoroddsen, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur.“

Aðspurður hvort það geti verið hvort að vinsælu íþróttirnar hækki æfingagjöldin meira en aðrar íþróttagreinar er svarið skýrt.

„Alveg klárlega,“ segir Þórgnýr og bætir við:

„Í sumum tilfellum eru einhver félög ættu að horfa aðeins í eigin barm og athuga hvort að hækkanirnar eru umfram það sem þau þurfa, segir Þórgnýr.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×