Sigurður Ingi nýr prófessor við tækni- og verkfræðideild HR Atli Ísleifsson skrifar 17. október 2017 11:47 Sigurður Ingi Erlingsson. HR
Sigurður Ingi Erlingsson hefur verið skipaður í stöðu prófessors við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. Í tilkynningu frá skólanum segir að Sigurður Ingi hafi stundað grunnrannsóknir í eðlisfræði og kennt eðlisfræði og stærðfræði við tækni- og verkfræðideild HR frá árinu 2008. „Hann var sviðsstjóri véla- og rafmagnssviðs deildarinnar á tímabilinu 2012-2014. Á árunum 2014-2017 var hann formaður Eðlisfræðifélags Íslands. Áður en Sigurður hóf störf hjá HR, starfaði hann sem nýdoktor við Háskólann í Basel frá 2003 til 2006 og síðar við Háskóla Íslands frá 2006 til 2008. Rannsóknir Sigurðar hafa m.a. fjallað um rafeindaspuna í hálfleiðurum, sérstaklega áhrif víxlverkunar við kjarnspuna og spuna-brautar víxlverkun. Nýlegar rannsóknir Sigurðar hafa snúist um eiginleika grannfræðilegra einangrara, bæði í tvívíðum kerfum og nanóvírum. Niðurstöður rannsóknanna hafa verið birtar í virtum alþjóðlegum vísindatímaritum. Sigurður lauk doktorsprófi í eðlisfræði frá Delft University of Technology árið 2003, meistaragráðu í eðlisfræði frá Háskóla Íslands 1999 og BSc gráðu í eðlisfræði frá sama skóla árið 1997.“ Í tilkynningunni segir ennfremur að Sigurður Ingi haldi opinn framgangsfyrirlestur í HR á morgun, miðvikudaginn 18. október kl. 15:00 í stofu M103. Fyrirlesturinn verður haldinn á ensku og ber titilinn: „How I learned to stop worrying and love quantum mechanics.“
Ráðningar Mest lesið Álagning á áfengi mest á Íslandi Viðskipti innlent Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Viðskipti innlent Stefna á Coda stöð við Húsavík Viðskipti innlent Önnur Airbus-þotan væntanleg á morgun Viðskipti innlent Rukka í „rennuna“ á flugvellinum Neytendur „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir Atvinnulíf „Við sem neytendur eigum ekki að sætta okkur við þetta“ Viðskipti innlent Setur háa tolla á Evrópu Viðskipti erlent Kaupin á TM gengin í gegn fyrir ríflega þrjátíu milljarða króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Álagning á áfengi mest á Íslandi Stefna á Coda stöð við Húsavík Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Önnur Airbus-þotan væntanleg á morgun Kaupin á TM gengin í gegn fyrir ríflega þrjátíu milljarða króna Tveir af hverjum þremur andvígir sameiningu bankanna Skella sér í sósur og ís fyrir fjóra milljarða Virða niðurstöðu Íslandsbanka „Við sem neytendur eigum ekki að sætta okkur við þetta“ Íslandsbanki afþakkar boð Arion um samrunaviðræður Forstjóri ÁTVR lætur af störfum Mátti greiða himinháan reikning korter í þrot eftir allt saman Misstu þrjá dróna í gosið við tökur á sýningunni Nýjar verðbólgutölur gefa von um hraðari lækkun vaxta Björn hvergi af baki dottinn í milljarðadeilu Verðbólga 4,2 prósent og ekki minni í fjögur ár Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðar nýr sölustjóri Wisefish Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Semja um fjögurra milljarða króna lán Sjá meira