Innlent

Kosningaþáttur Stöðvar 2 - Norðausturkjördæmi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Fyrsti kosningaþáttur Stöðvar 2 fyrir komandi þingkosningar fer í loftið klukkan 19:10 í kvöld en þættirnir verða á dagskrá strax að loknum fréttum þriðjudaga og fimmtudaga fram að kosningum.

Þeir verða opinni dagskrá og í beinni útsendingu bæði á Stöð 2 og hér á Vísi. Einn verður fyrir hvert kjördæmi en Reykjavíkurkjördæmin verða tekin saman.

Í kvöld verður byrjað á Norðausturkjördæmi og munu fulltrúar allra þeirra flokka sem eru á þingi í dag ásamt þeim flokkum sem mælst hafa yfir fimm prósentum í könnunum mæta í þáttinn.

Fylgjast má með útsendingunni í spilaranum hér fyrir ofan en stjórnandi þáttarins er Heimir Már Pétursson.

Uppfært: Útsendingunni er lokið en þáttinn í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×