Kolasinac allt í öllu í sigri Arsenal Arnar Geir Halldórsson skrifar 28. október 2017 15:45 Bosníumaðurinn Kolasinac reyndist Arsenal mikilvægur í dag vísir/getty Arsenal fékk Swansea í heimsókn á Emirates leikvanginn í dag og lentu Skytturnar í kröppum dansi. Sam Clucas kom Swansea yfir í fyrri hálfleik og leiddu gestirnir í leikhléi. Heimamenn mættu sprækari til leiks í síðari hálfleik og Sead Kolasinac jafnaði metin á 51.mínútu. Kolasinac var ekki hættur því hann lagði upp mark fyrir Aaron Ramsey sjö mínútum síðar og þar við sat. 2-1 sigur Arsenal staðreynd og eru þeir því í fjórða sæti deildarinnar með 19 stig. Enski boltinn