Enski boltinn

Sjáðu markið sem Jóhann Berg lagði upp og allt það helsta úr 10. umferðinni | Myndbönd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jóhann Berg Guðmundsson lagði sigurmark Burnley í 1-0 sigri á Newcastle United í gær. Með sigrinum fór Burnley upp í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Þetta er annað markið sem Jóhann Berg leggur upp í síðustu þremur leikjum Burnley. Hann er nú þegar búinn að jafna stoðsendingafjölda sinn frá síðasta tímabili.

Burnley hefur komið skemmtilega á óvart í vetur og hefur aðeins tapað tveimur af 10 deildarleikjum sínum. Aðeins Manchester-liðin hafa tapað færri leikjum en Burnley.

Markið sem Jóhann Berg lagði upp má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Fyrir neðan má sjá allt það helsta úr leikjum 10. umferðar; mörkin, flottustu markvörslurnar o.s.frv.

Mörk umferðarinnar
Markvörslur umferðarinnar
Augnablik umferðarinnar
Uppgjör umferðarinnar

Tengdar fréttir

Jóhann Berg lagði upp sigurmark Burnley

Jóhann Berg Guðmundsson lagði upp eina mark leiksins þegar Burnley bar sigurorð af Newcastle United á Turf Moor í kvöld. Lokatölur 1-0, Burnley í vil.

Landsliðsstjarna gefur út fótboltaspil

Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, stendur að fótboltaspilinu Beint í mark ásamt ritstjórum á stærstu fótboltavefsíðunum landsins, fótbolta.net og 433.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×