Jóhann Berg lagði upp sigurmark Burnley | Sjáðu markið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. október 2017 21:45 Jóhann Berg Guðmundsson lagði upp eina mark leiksins þegar Burnley bar sigurorð af Newcastle United á Turf Moor í kvöld. Lokatölur 1-0, Burnley í vil. Leikurinn var afar tíðindalítill og fá færi litu dagsins ljós. Eina markið kom á 74. mínútu. Jack Cork vann boltann þá á miðjunni og kom honum út til hægri á Jóhann Berg. Íslenski landsliðsmaðurinn setti boltann aftur á Cork sem átti skot sem Rob Elliot varði. Boltinn barst aftur til Jóhanns Berg sem setti hann á fjær á Jeff Hendrick sem skoraði sitt annað mark á tímabilinu. Þetta var önnur stoðsending Jóhanns Berg í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Mark Hendricks dugði Burnley til sigurs. Með honum komst liðið upp í 7. sæti deildarinnar. Newcastle er hins vegar í 9. sæti. Tveimur stigum munar nú á liðunum. Enski boltinn