Erlent

Búið að rýma skoska þinghúsið

Atli Ísleifsson skrifar
Skoska þinghúsið í Edinborg.
Skoska þinghúsið í Edinborg. Vísir/Getty
Búið er að rýma hluta skoska þinghússins í Edinborg eftir að hvítt duft hafði verið sent þingmönnum Íhaldsmanna.

BBC greinir frá því lögreglu hafi borist tilkynning um málið klukkan 11:30 að staðartíma eftir að þrír pakkar höfðu borist þingmönnum Íhaldsmanna.

Hvíta duftið fannst þegar fyrsti pakkinn var opnaður, en ekki er búið að opna hina pakkana sem virðast vera frá sama sendanda.

Pakkarnir voru stílaðir á þingmennina Liz Smith, Jamie Halcro-Johnston og Edward Mountain.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×