Markvörðurinn handtekinn í miðri úrslitakeppni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2017 14:30 Tyler Deric. Vísir/Getty
Houston Dynamo fótboltaliðið varð fyrir áfalli í miðri úrslitakeppni MLS-deildarinnar í Bandaríkjunum þegar markvörður liðsins var handtekinn. Hann hefur nú verið settur í ótímabundið leikbann. Tyler Deric, markvörður Houston Dynamo, var handtekinn fyrir heimilisofbeldi og degi síðar var MLS-deildin búin að setja hann í bann. MLS-deildin sagði frá þessu á heimasíðu sinni. Hinn 29 ára gamli markvörður var handtekinn fyrir að skalla kærustu sína og hann er ekki aðeins á leið í réttarsal heldur er hann einnig búinn að enda tímabilið sitt. Houston Dynamo sendi frá sér fréttatilkynningu vegna málsins þar sem kemur fram að menn þar á bæ ætli að vinna með yfirvöldum til að komast að sannleikanum og að hjá félaginu séu svona mál tekin mjög alvarlega. Félagið styður ennfremur þá ákvörðun MLS-deildarinnar að setja leikmanninn í ótímabundið bann.Club and MLS statements regarding goalkeeper Tyler Deric: https://t.co/jPAhMn8Nmlpic.twitter.com/psVrfx3Zt2 — Houston Dynamo (@HoustonDynamo) November 1, 2017 Tyler Deric spilaði 26 leiki með Houston Dynamo en þetta er níunda tímabilið hans með félaginu. Hann var valinn besti leikmaður deildarinnar í október. Tyler Deric hélt hreinu í fyrri undanúrslitaleiknum á móti Portland Timbers en nú þarf Houston Dynamo að treysta á varamarkvörðinn sinn í þessum mikilvæga leik í úrslitakeppninni.He's one of our own! Congrats to @tyderic on being named the @MLS Player of the Month: https://t.co/aWRcM1fg59#ForHoustonForeverpic.twitter.com/RXCqw47nWy — Houston Dynamo (@HoustonDynamo) October 27, 2017
Fótbolti Mest lesið Bein útsending: Rakel María er hætt en fjórtán eru enn að hlaupa Sport Rakel María endaði upp á spítala: „Ég á bara ótrúlega erfitt“ Sport Skiptar skoðanir á nýju merki Njarðvíkur Körfubolti Besti dómarinn í deildinni á von á sínu þriðja barni Fótbolti Grizzlies semja við lágvaxnasta leikmann NBA deildarinnar Körfubolti „Hún er hjartað og lungað í liðinu“ Körfubolti Messi kom inn á í hálfleik og skoraði þrennu Fótbolti Sjáðu sigurmarkið sem dæmt var af Skagamönnum Fótbolti Dagskráin í dag: Botnslagir í Bestu Sport Hættir að elska Jürgen Klopp: „Hefur þú gleymt öllu?“ Fótbolti Fleiri fréttir Hættir að elska Jürgen Klopp: „Hefur þú gleymt öllu?“ Sjáðu dramatísk sigurmörk, vítaklúður Gylfa og öll mörkin úr Bestu í gær Besti dómarinn í deildinni á von á sínu þriðja barni Messi kom inn á í hálfleik og skoraði þrennu PSG aftur á toppinn Sjálfsmark skaut Juvents á toppinn Diljá Ýr skoraði í stórsigri Leuven Harry Kane með þrennu í stórsigri Bayern Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Real Madrid upp að hlið Barcelona á toppnum „Þarft að vinna uppi á Skaga til þess að verða Íslandsmeistari“ Sjáðu sigurmarkið sem dæmt var af Skagamönnum Birkir kom inn á og skoraði sárabótarmark „Óskiljanlegt að setja Erlend í þetta verkefni" „Gæti verið minn síðasti leikur á laugardaginn“ Everton vann og endurkomusigrar hjá Leicester og Villa Þrjú stig í sarpinn en Orri leitar að markaskónum Arsenal mistókst að koma sér á toppinn Langþráð og laglegt mark Höjlund tryggði Man. Utd sigurinn Willum Þór með mikilvægt mark í endurkomusigri Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Uppgjörið KA - Vestri 2-1| Elfar Árni afgreiddi Vestra Bætti fyrir vítaklúðrið með því að skora sigurmarkið Þrjú mörk á sjö mínútum í sannfærandi sigri Spurs Uppgjörið : FH - Valur 1-1 | Gylfi klúðraði víti og FH stal stigi í uppbótartíma Ísak reiddist dómaranum og lagði þá bara upp mark í staðinn Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Fannst Inter besti kosturinn: „Ekkert að því að búa í Mílanó“ Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn „Ævintýri og lygar í boði sumra ykkar“ Sjá meira