Útlit, virkni og gæði frá ZO•ON 28. nóvember 2017 09:00 "Við hugsum sumarlínuna og vetrarlínuna sem eina heild, þar sem við getum leikið okkur með léttar sumarflíkur og einangrað þær með öðrum dún- eða primaloftflíkum þegar kólna fer í veðri,“ segir Hulda Karlotta. MYND/ANTON BRINK
KYNNING ZO•ON hefur sent frá sér nýja vetrarlínu þar sem helstu áherslunar eru á smart, fjölnota fatnað sem hægt er að nota við mismunandi tækifæri. „Fötin frá ZO•ON eru hönnuð þannig að þau henta vel hvort sem þau eru notuð við útivist á fjöllum eða í daglegu amstri og því staðsetjum við merkið okkur sem „urban outdoor“. Það sem er nýtt hjá ZO•ON er að fleiri flíkur falla í þennan flokk og má þar helst nefna glæsilega úlpu sem kallast Patti. Um er að ræða frábæra herraúlpu í léttari kantinum sem gefur góðan varma á köldum dögum. Hún er hönnuð með það í huga að vera lipur í notkun og er jafnframt vatnsheld svo hún þolir vel hvaða veður sem er. Patti kemur í tveimur litum, svörtum og dökkbláu og úlpan passar við nánast allt. Fyrir dömurnar hefur létta úlpan Þrauka verið mjög vinsæl og til að toppa útlitið þá er Esja dúnjakkinn okkar settur undir hana,“ segir Hulda Karlotta Kristjánsdóttir, hönnuður og gæðastjóri hjá ZO•ON, en hún lærði fatahönnun við Listaháskóla Íslands.Patti er frábær herraúlpa í léttari kantinum sem gefur góðan varma á köldum dögum. Hún er hönnuð með það í huga að vera lipur í notkun og er jafnframt vatnsheld svo hún þolir vel hvaða veður sem er.Vönduð, tæknileg efni og náttúrulegir litir Von er á nýrri og glæsilegri vörulínu frá ZO•ON á næstunni og segir Hulda Karlotta þar sé lögð jöfn áhersla á útivistarhliðina og borgarklæðnað, eða „urban wear“. „Við höldum áfram að nota vönduð, tæknileg efni og leggjum áherslu á smáatriðin. Hönnunin einkennist af afslöppuðu útliti og náttúrulegum litum. Við höfum verið með „2 in 1“ úlpur, sem eru frábærar fyrir okkar íslenska veður en auðvelt er að breyta þeim í regnjakka. Þetta hefur mælst svo vel fyrir hér svo við ætlum að halda áfram með þetta og koma með fleiri útgáfur,“ upplýsir Hulda Karlotta.Sífellt fleiri fyrirtæki kjósa fatnað frá ZO•ON fyrir starfsfólk sitt. „Hjá okkur fást vinnupeysur og annar þægilegur vinnufatnaðar þar sem ekkert er gefið eftir hvað varðar gæði og endingu," segir Hulda Karlotta.„Næsta vetur munum við svo bæta við „3 in 1“ jökkum, sem er 3ja laga jakkar með primaloftjakka innan í. Við hugsum sumarlínuna og vetrarlínuna sem eina heild, þar sem við getum leikið okkur með léttar sumarflíkur og einangrað þær með öðrum dún- eða primaloftflíkum þegar kólna fer í veðri. Þetta gefur flíkunum mun meira notagildi en áður,“ segir Hulda Karlotta.Úlpurnar frá ZO•ON henta vel fyrir útivist jafnt sem daglega lífið.Útlit, virkni og gæðiÞegar ný lína verður til hjá hönnunarteymi ZO•ON er farið vel yfir hvað hefur gengið vel og hvað síður, að sögn Huldu Karlottu. „Við höfum alltaf í huga útlit, virkni og gæði. Við þurfum líka að hafa í huga að við viljum ná til breiðs aldurhóps. Innblástur og liti sækjum við yfirleitt í íslenska náttúru. Hún er stórbrotin og hefur alltaf upp á eitthvað nýtt að bjóða fyrir innblásturinn. Við erum tvö í hönnunarteyminu, ég og Martti Kellokumpu sem er frá Finnlandi. Hann er þaulreyndur útivistarhönnuður og starfaði í mörg ár hjá finnska merkinu HALTI. Við erum nokkuð ólíkir hönnuðir, hann er með tæknilegu hliðina og ég er meira með tískuhliðina. Þessar ólíku hliðar gera okkur að sterku teymi og má sjá afraksturinn okkar í nýju vetrarlínunni sem er nú í verslunum okkar. Þessi lína hefur vægast sagt fengið góðar viðtökur,“ segir Hulda Karlotta brosandi.Fallegir litir einkenna nýjust línuna.ZO•ON í jólapakka fyrirtækjaSífellt fleiri fyrirtæki kjósa fatnað frá ZO•ON fyrir starfsfólk sitt. „Hjá okkur fást vinnupeysur og annar þægilegur vinnufatnaðar þar sem ekkert er gefið eftir hvað varðar gæði og endingu. Það er frábært fyrir fyrirtæki að geta boðið starfsfólki falleg gæðaföt úr góðum efnum sem hafa mismunandi eiginleika,“ segir Hulda Karlotta. Fatnaður frá ZO•ON hentar einnig vel til jólagjafa eða annarra starfsmannagjafa fyrirtækja. „Við höfum margt sniðugt að bjóða í gjafir fyrir starfsfólk fyrirtækja, svo sem yfirhafnir, hlýjar peysur og buxur, auk þess sem gott úrval er af fylgihlutum á borð við undirfatnað, húfur, vettlinga, létta bakpoka og fleira,“ segir Hulda Karlotta. Gjafkortin frá ZO•ON hafa einnig verið vinsæl og þau eru kjörin jólagjöf til starfsmanna fyrirtækja en þá getur fólk sjálft valið það sem hentar hverjum og einum best. „Við tökum vel á móti fyrirtækjum og metum þarfir þeirra. Mörg fyrirtæki vilja láta merkja fatnaðinn, fá sýnishorn eða mátunarsett. Við reynum að mæta þörfum hvers og eins eftir fremsta megni og leggjum mikið upp úr því að veita framúrskarandi þjónustu,“ segir Hulda Karlotta að lokum.Sölustaðir: ZO•ON selur vörur sínar í verslunum um allt land. Hægt er að sjá nánar um sölustaðina á www.zo-on.is
Mest lesið Færeyjaferð endaði á Hotel Cabin: „Búnar að hlæja viðstöðulaust síðan við fórum upp á völl“ Lífið Bannað að ræða fótbolta og heimilisfjármálin á stefnumótum Makamál Smakkaði skötu í beinni: „Sjitturinn, kött!“ Matur Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Íslendingar tilnefndir til Emmy-verðlauna Bíó og sjónvarp Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lífið Fleiri fréttir Má augnskugginn þinn fara í kringum augun? Myndaveisla frá Kótilettunni þar sem Bylgjulestin var í beinni Spennandi ferðir til Taílands og Balí í haust Bylgjulestin á Kótelettunni Komdu í veg fyrir bitglaðar blóðsugur í sumar! Rómantísk bylgja í lestri með hækkandi sól Einstök upplifun í sveitasælu Óbrjótanleg lúxusglös í útileguna Myndaveisla frá Akureyri þar sem Bylgjulestin var í beinni Bylgjulestin verður í beinni frá Akureyri Nova klippir kaffiverðið Bylgjulestin var í beinni frá Humarhátíðinni Nýjar merkjavörur í hverri viku á Pop up markaði Optical Studio Nú set ég mig í fyrsta, annað og þriðja sætið Bylgjulestin á Humarhátíðinni um helgina Látum ekki lúsmýið skemma fyrir okkur gleðina - Bitin burt Sólgleraugu og umgjarðir á 40-70% afslætti - Pop up Optical Studio Hægðirnar segja til um heilsufarið – rétt fóður mikilvægt Hefði ekki trúað áhrifunum! Frábær stemming á Jósmessuhátíð á Eyrarbakka Farðu ljómandi í sumarið! Það má leika sér með matinn Bylgjulestin mætir á Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka um helgina „Finnst ég geta afkastað mun meira yfir daginn“ Heimili myndast þegar fjölskyldan ver tíma þar saman Bylgjulestin í bongóblíðu á Þingvöllum Myndaveisla: Enn eitt vel heppnað Streetball mót X977 Allt sem þú þarft fyrir Midsummer hátíðina Bylgjulestin verður á Þingvöllum laugardaginn 15. júní Viltu bæta svefngæði þín? Sjá meira