Enski boltinn

Coutinho: Klopp að glíma við lúxusvandamál

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Philippe Coutinho.
Philippe Coutinho. vísir/getty
Philippe Coutinho, aðalstjarna Liverpool, er ánægður með gæðin í leikmannahópi liðsins og reiknar með að Jurgen Klopp eigi í miklum erfiðleikum með að velja byrjunarliðið.

Sjálfur er Coutinho óðum að nálgast sitt besta form auk þess sem nokkrir lykilmenn liðsins eru nú búnir að jafna sig af meiðslum, þar á meðal Adam Lallana.

„Við erum að fá nokkra leikmenn til baka úr meiðslum og það er mikilvægt fyrir hópinn. Framundan er mikið af leikjum á stuttum tíma svo það er mikilvægt að allir séu einbeittir,“ segir Coutinho.

„Ég held það hafi aldrei verið erfiðara fyrir stjórann að velja byrjunarliðið því hópurinn er stútfullur af gæðum og allir eru að leggja sig virkilega vel fram. Það er gott fyrir liðið og frábært að fá leikmenn eins og Adam (Lallana) aftur inn.“

Liverpool mætir Chelsea í stórleik dagsins í enska boltanum. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsending klukkan 17:20.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×