Burnley án sigurs í síðustu fjórum leikjum | Öll úrslit dagsins Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. desember 2017 16:45 Jóhann Berg fer framhjá Scott Malone. vísir/getty
Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn fyrir Burnley sem gerði markalaust jafntefli við Huddersfield á útivelli í 21. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Burnley hefur ekki unnið í fjórum síðustu leikjum sínum. Liðið er samt enn í 7. sæti deildarinnar. Englandsmeistarar Chelsea skutust upp í 2. sætið með 5-0 stórsigri á Stoke City á Stamford Bridge. Antonio Rüdiger, Danny Drinkwater, Pedro, Willian og Davide Zappacosta skoruðu mörk Chelsea sem hefur unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum. Luciano Narsingh tryggði Swansea City sigur á Watford, 1-2, í fyrsta leiknum undir stjórn Carlos Carvalhal. André Carrillo kom Watford yfir á 11. mínútu og þannig var staðan allt þangað til fjórar mínútur voru til leiksloka. Þá jafnaði Jordan Ayew metin og á lokamínútunni skoraði Narsingh sigurmark Swansea. Ekkert mark var skorað í leik Newcastle United og Brighton á St. James' Park.Ryan Fraser skoraði bæði mörk Bournemouth sem vann 2-1 sigur á Everton.Mohamed Salah var hetja Liverpool sem vann 2-1 sigur á Leicester City á Anfield.Úrslit dagsins:Huddersfield 0-0 BurnleyChelsea 5-0 Stoke 1-0 Antonio Rüdiger (3.), 2-0 Danny Drinkwater (9.), 3-0 Pedro (23.), 4-0 Willian, víti (73.), 5-0 Davide Zappacosta (88.).Watford 1-2 Swansea 1-0 André Carrillo (11.), 1-1 Jordan Ayew (86.), 1-2 Luciano Narsingh (90.).Newcastle 0-0 BrightonBournemouth 2-1 Everton 1-0 Ryan Fraser (33.), 1-1 Idrissa Gueye (57.), 2-1 Fraser (89.).Liverpool 2-1 Leicester 0-1 Jamie Vardy (3.), 1-1 Mohamed Salah (52.), 2-1 Salah (76.).
Enski boltinn Tengdar fréttir Í beinni: Manchester United - Southampton │ Vinnur Southampton fyrsta leik sinn í desember? Manchester United og Southampton gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. 30. desember 2017 19:15 Í beinni: Bournemouth - Everton │Gylfi og félagar ekki skorað mark í 180 mínútur Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton töpuðu fyrir Bournemouth 2-1 þar sem Ryan Fraser skoraði tvö mörk fyrir Bournemouth 30. desember 2017 17:00 Salah skoraði tvö er Liverpool kom til baka Liverpool komst í 41 stig eftir 2-1 sigur á Leicester á Anfield þar sem Mohamed Salah skoraði bæði mörk Liverpool. 30. desember 2017 17:00
Í beinni: Manchester United - Southampton │ Vinnur Southampton fyrsta leik sinn í desember? Manchester United og Southampton gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. 30. desember 2017 19:15
Í beinni: Bournemouth - Everton │Gylfi og félagar ekki skorað mark í 180 mínútur Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton töpuðu fyrir Bournemouth 2-1 þar sem Ryan Fraser skoraði tvö mörk fyrir Bournemouth 30. desember 2017 17:00
Salah skoraði tvö er Liverpool kom til baka Liverpool komst í 41 stig eftir 2-1 sigur á Leicester á Anfield þar sem Mohamed Salah skoraði bæði mörk Liverpool. 30. desember 2017 17:00