Ráðherra segir vel hægt að leggja veginn um Teigsskóg
Vegurinn um Ódrjúgsháls er með þeim sem heitast brenna á Vestfirðingum en á Stöð 2 var sýnt myndband, sem Patreksfirðingurinn Páll Vilhjálmsson tók í fyrradag, af flutningabíl í vandræðum á hálsinum.
„Það er eitt af þessum brýnustu verkefnum sem stjórnvöld hafa að einhverju leyti heykst á að klára í allt of langan tíma. Það er svona eitt af því sem ég myndi vilja leggja áherslu á,“ segir Sigurður Ingi um Vestfjarðaveg um Gufudalssveit.
Ráðherrann segir að nú sé beðið eftir því að Reykhólahreppur breyti aðalskipulagi. En hvaða skoðun hefur hann sjálfur á vegarlagningu um Teigsskóg?
„Ég var nú umhverfisráðherra þegar við lögðum af stað í þetta verkefni. Mér fannst þær leiðir sem þá voru farnar vera skynsamar, það er að segja að reyna að fara þessar réttu skipulagsleiðir. Mér finnst við hafa lent einhvern veginn upp á skeri.
Ég var á þeirri skoðun, - fór í vettvangsskoðun með þingflokki framsóknarmanna á sínum tíma, - að þarna væri vel hægt að fara í þessar framkvæmdir, á þann hátt sem þá var lagt upp með, - með mótvægisaðgerðum. Og ég hef svo sem ekkert skipt um skoðun hvað það varðar.
En ég þarf auðvitað að fara yfir hvaða valkostum við stöndum frammi fyrir.“
Þegar spurt er hvort ráðherra telji unnt að fjármagna jarðgöng undir Hjallaháls á næstu árum bendir hann á að Dýrafjarðargöng verði tilbúin haustið 2020. Miðað hefur verið við að Seyðisfjarðargöng yrðu næst í röðinni en kæmi til greina að göng undir Hjallaháls yrðu tekin fram fyrir þau?
„Það hefur verið planið, eins og þú réttilega nefnir, að Seyðisfjarðargöng, eða sem sagt vegbætur þangað, séu næstar í röðinni. Og ég hef ekki séð neina ástæðu til að breyta því. En þetta er eitt af þeim stóru verkefnum sem ég þarf að leggjast yfir.“
En gæti skipan nýs umhverfisráðherra úr röðum hörðustu andstæðinga Teigsskógarvegar breytt málinu, - að það verði kannski harðari andstaða frá Vinstri grænum?
„Nei, það held ég ekki. Ég held að allir ráðherrar, alveg sama hvað þeir hafa unnið við áður, vinni vinnu sína af fagmennsku og fylgi því sem við erum að gera í ríkisstjórninni,“ svarar samgönguráðherra.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Tengdar fréttir
Segir óskiljanlegt að Teigsskógur hafi ekki verið tekinn eignarnámi
Þetta segir Kjartan Gunnarsson lögmaður, sem sjálfur hefur mátt þola eignarnám, en hann hefur sem jarðeigandi á Rauðasandi kynnst vel þeim aðstæðum sem Vestfirðingar búa við í vegamálum.
Alveg sama hvar vegurinn kemur, bara að þeir byrji
Bændur í Gufudalssveit eru opnir fyrir öðrum lausnum í stað vegar um Teigsskóg, bæði jarðgöngum og þverun Þorskafjarðar með sjávarfallavirkjun.
Jarðgöng sem hlífa Teigsskógi kosta 4,5 milljarða aukalega
Vegagerðin hyggst óska eftir framkvæmdaleyfi í Teigsskógi, þrátt fyrir neikvætt álit Skipulagsstofnunar í dag.
Ný veglína raskar 6% af Teigsskógi
Ákvörðun Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, um að reyna að koma Vestfjarðavegi í gegnum Teigsskóg, var fagnað á fundi Fjórðungssambands Vestfirðinga á Tálknafirði í dag.
Samgönguáætlun sturtað niður í sjö milljarða króna niðurskurði
Skera þarf nýframkvæmdir í vegagerð niður um sjö milljarða króna á næsta ári, miðað við samgönguáætlun, til að mæta fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.
Samgönguáætlun var óheppilegur óskalisti
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra segir samgönguáætlun hafa verið óskalista sem allir vissu að erfitt yrði að fjármagna.