Brighton og Southampton skildu jöfn Arnar Geir Halldórsson skrifar 29. október 2017 15:15 Hart barist vísir/getty Fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni lauk með 1-1 jafntefli þegar nýliðar Brighton fengu Southampton í heimsókn. Gestirnir fengu draumabyrjun því Steven Davis kom Southampton yfir á sjöundu mínútu þegar hann fylgdi á eftir aukaspyrnu James Ward-Prowse sem hafnaði í tréverkinu. Staðan í leikhléi 0-1 fyrir Southampton. Á sjöundu mínútu síðari hálfleiks jafnaði Glenn Murray metin fyrir heimamenn eftir undirbúning Pascal Gross og þar við sat. Einu stigi munar á þessum liðum en Southampton situr í níunda sæti á meðan nýliðar Brighton eru í því ellefta. Enski boltinn