Erlent

Skotárás á háskólasvæði í Louisiana

Atli Ísleifsson skrifar
Lögregla greinir frá því að árásarmaðurinn hafi flúið af vettvangi.
Lögregla greinir frá því að árásarmaðurinn hafi flúið af vettvangi. Vísir/Getty
Tveir eru látnir eftir skotárás í garði heimavistar háskóla í Louisiana-ríki í Bandaríkjunum.

BBC greinir hefur eftir Will Sutton, talsmanni Grambling State University (GSU), að árásin hafi átt sér stað á háskólasvæðinu eftir deilur í herbergi á heimavistinni.

Lögregla greinir frá því að árásarmaðurinn hafi flúið af vettvangi og stendur rannsókn á málinu enn yfir.

Annar hinna látnu, Earl Andrews, stundaði nám við skólann, en hinn, Monquiarious Caldwell, var ekki nemandi við skólann. Báðir voru þeir 23 ára gamlir. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×