Enski boltinn

Jafntefli hjá Herði og Birki

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason. vísir/getty
Íslendingarnir í liðum Bristol City og Aston Villa fengu lítið að láta ljós sín skína er liðin mættust í ensku B-deildinni í kvöld.

Leik liðanna lyktaði með 1-1 jafntefli. Jamie Paterson skoraði fyrir Bristol en Joshua Onomah skoraði mark Villa.

Bristol er með fimm stig í deildinni en Villa fjögur.

Hörður Björgvin Magnússon sat á bekk Bristol allan leikinn en Birkir Bjarnason spilaði síðustu tíu mínútur leiksins fyrir Villa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×