Kínverji handtekinn fyrir að falsa brúðkaupsgesti Anton Egilsson skrifar 1. maí 2017 14:30 Fjölskylda brúðarmeyjarinnar kom upp um svikamyllu mannsins. Nordicphotos/Getty
Kínverskur maður var handtekinn á sjálfan brúðkaupsdaginn eftir að upp komst að þeir 200 gestir sem hann bauð í brúðkaupsveislu sína væru í raun leikarar sem hann hafði borgað til að mæta. Hafði maðurinn haldið því fram að um vini og vandamenn væri að ræða. Í frétt BBC um málið segir að það hafi verið fjölskylda brúðarinnar sem hafi flett ofan af þessari svikamyllu mannsins. Það hafi vakið hjá þeim grunsemdir að margir gestanna hafi lýst því yfir í samtölum að vera kunningjar mannsins án þess þó að greina nánar frá því hvernig þau þekktu hann í raun og veru. Þegar athöfnin hófst og ekkert bólaði á foreldrum mannsins komst hið sanna svo í ljós. Upplýst hefur verið að aðilarnir hafi hver um sig fengið greitt um 1300 krónur fyrir ómakið. Á meðal þeirra sem maðurinn samdi við um að koma í brúðkaupið voru leigubílstjórar og námsmenn. Þá greinir einn gestanna frá því að maðurinn hafi haft samband við sig í gegnum samfélagsmiðil og boðið honum fyrrnefnda upphæð fyrir það að mæta. Enn er ekki vitað um ástæður þess að maðurinn brá á þetta ráð. Enn fremur liggur ekki ljóst fyrir hvaða lög maðurinn á að hafa brotið með athæfi sínu. Það hefur þó verið staðfest að lögreglurannsókn standi nú yfir.
Mest lesið Skorað á Sigurð Inga að afturkalla tilmæli Svandísar Fréttir Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „Tilraun Hezbollah til að ráða mig og konu mína af dögum voru stór mistök“ Erlent Enginn handtekinn í tengslum við brunann á Stuðlum Innlent Sigríður Andersen leiðir lista Miðflokksins Innlent Lýsir stjórnlausum rasisma: „Hvort verður það líkamlegt ofbeldi eða svívirðingar?“ Innlent Stjórnmálin á Sprengisandi í dag Innlent Sautján ára piltur lést í brunanum á Stuðlum Innlent Vill leiða Miðflokkinn í Suðurkjördæmi Innlent Fleiri fréttir Enn rafmagnslaust á Kúbu „Tilraun Hezbollah til að ráða mig og konu mína af dögum voru stór mistök“ Aftur rafmagnslaust á Kúbu Sprengjudróni hæfði heimili Netanjahús Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sjá meira
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent