Innlent

Mörkum tveggja skólahverfa í Reykjavík breytt

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Börn á skólalóð Melaskóla en skólahverfamörk breytast í Vesturbænum frá og með næsta skólaári.
Börn á skólalóð Melaskóla en skólahverfamörk breytast í Vesturbænum frá og með næsta skólaári. vísir/Vilhelm
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að breyta mörkum tveggja skólahverfa í Reykjavík frá og með næsta skólaári 2017 til 2018.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að skólahverfamörkum Langholtsskóla og Vogaskóla verði breytt á þann veg að Álfheimar 31 – 35, Glaðheimar, Sólheimar 25, Hlunnavogur og Sigluvogur flytjist úr skólahverfi Langholtsskóla yfir í skólahverfi Vogaskóla. Breytingin mun þó ekki hafa áhrif á þá nemendur sem sækja nú þegar þessa tvo skóla.

Þá breytast skólahverfamörk Grandaskóla og Melaskóla þannig að Meistaravellir tilheyri Grandaskóla í stað Melaskóla áður. Breytingin nær ekki til nemenda sem sækja nú þegar þessa tvo skóla.

„Í báðum tilvikum eigi foreldrar sem eiga lögheimili í götum sem færast á milli skólahverfa val um í hvorn skólann börn þeirra fara og forgang í báða skólana út skólaárið 2017 - 2018.

 

Breytingar á skólamörkum voru gerðar að tillögu starfshóps og að undangengnu umsagnarferli hjá skólaráðum og foreldrafélagum,  svo og opnum íbúafundum þar sem þær voru kynntar,“ segir í tilkynningu borgarinnar vegna málsins.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×