Innlent

Kom þýfinu fyrir í bakpoka barns

Atli Ísleifsson skrifar
Konan var stöðvuð þegar hún var komin fram hjá afgreiðslukössunum í versluninni. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Konan var stöðvuð þegar hún var komin fram hjá afgreiðslukössunum í versluninni. Myndin tengist fréttinni ekki beint. vísir/eyþór
Kona var um helgina staðin að verki þar sem hún hafði komið þýfi fyrir í bakpoka barns í Bónusverslun í Keflavík.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Það var starfsmaður verslunarinnar sem hafði samband við lögreglu.

„Um var að ræða konu sem var með barn með sér og setti hún varning í bakpoka sem barnið var með.

Hún var stöðvuð þegar hún var komin fram hjá afgreiðslukössunum í versluninni. Framvísaði hún þá vörunum sem hún hafði huplað,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×