Innlent

Mikil olíubrák á Breiðholtsbraut og Suðurlandsvegi

Atli Ísleifsson skrifar
Unnið er að því að hreinsa veginn. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Unnið er að því að hreinsa veginn. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Andri Marinó
Mikil olíubrák er nú á vegi á Breiðholtsbraut frá Vatnsendahvarfi til austurs inn á Suðurlandsveg og þaðan allt austur í Lögbergsbrekku.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Þar segir að olíubrákin skapi verulega hálku á veginum og því þurfi fólk sérstaklega að vara sig við hringtorg.

Unnið er að því að hreinsa veginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×