Fjárfesti í íbúðinni sem allir gerðu grín að Íslandsbanki kynnir 11. apríl 2017 10:00 Berglind er alsæl með fyrstu íbúðina sína og hér og þar má sjá glitta í bleika sem setur litríkan svip á heimilið.
Berglind Pétursdóttir vildi hvergi annars staðar búa en í miðbænum og keypti ásamt fyrrum sambýlismanni sínum litla íbúð á fyrstu hæð á Hverfisgötu sem þau gerðu fokhelda og endurbyggðu á nokkrum mánuðum. Á meðan á framkvæmdum stóð bjuggu þau á Hótel mömmu og starfsmenn byggingarvöruverslanna og IKEA voru farnir að þekkja þau með nafni. Litla ógeðslega íbúðin er orðin að nútíma bleikri perlu í hjarta miðbæjarins og hefur nærri tvöfaldast að verðmæti á stuttum tíma. „Það kom enginn annar staður en miðbærinn til greina þegar íbúðakaup voru loksins ákveðin,“ segir Berglind, en íbúðin að Hverfisgötu er hennar fyrsta íbúð. Kaupin voru fjármögnuð með íbúðaláni hjá Landsbankanum, yfirdrætti og spurningaspili. Baðherbergið hefur fengið verulega útlitsbreytingu og bleiku flísarnar sem Berglind hreifst af á Tacobarnum koma mjög vel út.„Ég og fyrrum sambýlismaður minn vorum bæði í fullri vinnu á daginn og á kvöldin unnum við saman að verkefni, en við gerðum spurningaspil saman. Tekjurnar af því gerðu okkur kleift að eiga fyrir útborgun, ásamt hellings yfirdrætti. En ég hef svo sem alltaf verið í þúsund aukavinnum og verkefnum,“ segir Berglind. Berglind var búin að vera á leigumarkaðinum síðan hún var tvítug. „Ég var í Listaháskólanum og bjó heima hjá foreldrum mínum. Síðan þegar ég eignaðist son minn, fannst mér ekki hægt að búa heima lengur og fór að leigja. Við leigðum íbúð á Bergstaðastræti og leigusalarnir bjuggu á hæðinni fyrir ofan. Síðan fluttu þeir annað og við fluttum upp í þeirra íbúð,“ segir Berglind. Leigan var 200.000 kr. á mánuði og átti að hækka í 230.000 kr. eftir að Berglind flutti út.Svefnherbergið tók algjörum stakkaskiptum við breytinguna.Hætti við nám erlendis og keypti frekar íbúð Fasteignakaup voru ekki alveg efst á lista hjá Berglindi þegar íbúðin var keypt. Hún var á leiðinni til Manchester í nám í stafrænni verkefnastjórnun (Digital Media Management) og var búin að kaupa flugmiðann út. „Í dag sér ég ekki eftir að hafa sett námið á frest og fjárfest í fasteign í staðinn,“ segir Berglind.Stofan fyrir breytingar.Þegar ákvörðun var tekin um að kaupa fasteign í stað þess að leggja land undir fót og fara í nám erlendis byrjaði Berglind á að skoða fasteignir sem auglýstar voru til sölu á netinu. Margir vina hennar voru einnig í húsnæðishugleiðingum á sama tíma. Ein eign var til umræðu í bæði vinahóp hennar og í vinnunni, íbúðin sem Berglind býr í í dag. „Það voru bókstaflega allir að gera grín að þessari íbúð, enda var hún í frekar slæmu ástandi. Svo einn daginn sagði ég: „hvað ef við kaupum bara þessa ógeðslegu íbúð?“, enda var hún mjög ódýr og ég vissi það að það var mikil uppbygging í gangi á þessu svæði,“ segir Berglind. Íbúðin fékkst á 25 milljónir fyrir einu og hálfu ári síðan. „Ári seinna fékk ég tilboð í hana upp á 52 milljónir, sem að var auðvitað fráleitt verð, enda gekk það tilboð ekki eftir,“ segir Berglind, „í dag er íbúðin metin á 42 milljónir.“ Í stað þess að flytja í íbúðina í því ásigkomulagi sem hún var í við kaupin, var ákveðið að ráðast strax í breytingar á íbúðinni, „enda var alveg kominn tími á að endurnýja allt saman,“ segir Berglind. Afhending var á Þorláksmessu og tveimur dögum síðar var hafist handa við að gera íbúðina fokhelda og í sex mánuði bjó Berglind hjá foreldrum sínum. „Það var gott að eiga húsasmíðameistara að í fjölskyldunni ásamt frændum.“Stofan eftir breytingar.Ótal ferðir í IKEA Framkvæmdirnar kostuðu blóð, svita og tár. Og ótalmargar ferðir í helstu byggingavöruverslanir höfuðborgarsvæðisins og IKEA liggja að baki. „Ég lét örugglega teikna fyrir mig 700 hugmyndir í eldhúsdeildinni í IKEA, en svo enduðum við bara með einfalda innréttingu.“ Bleiki liturinn setur mark sitt á íbúðina hér og þar, meðal annars inn á baði, en flísarnar þar fundust eftir mikið þramm um allar flísabúðir Reykjavíkur. „Það rennur stundum á mig bleikt æði og ég náði að fá í gegn bæði bleikar flísar inni á baði og einn bleikan vegg í eldhúsinu. Baðflísarnar sáum við þegar við fórum út að borða á Taco-barnum á Hverfisgötu. Eftir mikla leit fundum við hvar þær voru til sölu og pöntuðum eins,“ segir Berglind alsæl með fyrstu íbúðina sína.Þetta var saga Berglindar, hvernig viltu að þín saga verði? Pantaðu ráðgjöf og komdu til okkar og gerðu þitt plan.Greinin er kostuð af Íslandsbanka en hún er hluti af Það er hægt, verkefni bankans um fyrstu kaup á fasteign.
Það er hægt Mest lesið Streitulaus heimferð Egils frá Grikklandi breyttist í martröð Lífið Stjörnulífið: „Ég er ekkert eðlilega skotin í þessum gæja“ Lífið Að drekka áfengi eins og að panta sér vanlíðan á Amazon Lífið Leifur og Hugrún orðin foreldrar Lífið Tanja Ýr á von á barni með breskum hermanni Lífið „Þetta var augljóslega slys“ Lífið „Hann var of klár fyrir lífið“ Lífið Ritstjóra DV dæmdur ósigur eftir símhringingu Lífið „Í dag eru sex ár frá því ég giftist þessum gæja í Verona“ Lífið Fagna afmæli prinsins með nýrri ljósmynd Lífið Fleiri fréttir Bylgjulestin á Götubitahátíðinni Má augnskugginn þinn fara í kringum augun? Myndaveisla frá Kótilettunni þar sem Bylgjulestin var í beinni Spennandi ferðir til Taílands og Balí í haust Bylgjulestin á Kótelettunni Komdu í veg fyrir bitglaðar blóðsugur í sumar! Rómantísk bylgja í lestri með hækkandi sól Einstök upplifun í sveitasælu Óbrjótanleg lúxusglös í útileguna Myndaveisla frá Akureyri þar sem Bylgjulestin var í beinni Bylgjulestin verður í beinni frá Akureyri Nova klippir kaffiverðið Bylgjulestin var í beinni frá Humarhátíðinni Nýjar merkjavörur í hverri viku á Pop up markaði Optical Studio Nú set ég mig í fyrsta, annað og þriðja sætið Bylgjulestin á Humarhátíðinni um helgina Látum ekki lúsmýið skemma fyrir okkur gleðina - Bitin burt Sólgleraugu og umgjarðir á 40-70% afslætti - Pop up Optical Studio Hægðirnar segja til um heilsufarið – rétt fóður mikilvægt Hefði ekki trúað áhrifunum! Frábær stemming á Jósmessuhátíð á Eyrarbakka Farðu ljómandi í sumarið! Það má leika sér með matinn Bylgjulestin mætir á Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka um helgina „Finnst ég geta afkastað mun meira yfir daginn“ Heimili myndast þegar fjölskyldan ver tíma þar saman Bylgjulestin í bongóblíðu á Þingvöllum Myndaveisla: Enn eitt vel heppnað Streetball mót X977 Allt sem þú þarft fyrir Midsummer hátíðina Bylgjulestin verður á Þingvöllum laugardaginn 15. júní Sjá meira