Enski boltinn

Eyddu mynd af rangstæðum Mkhitaryan

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mkhitaryan fagnar marki sínu gegn Ajax í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
Mkhitaryan fagnar marki sínu gegn Ajax í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. vísir/getty
Manchester United eyddi mynd af Henrikh Mkhitaryan sem birtist á Twitter-síðu félagsins.

Mkhitaryan var þar klæddur í nýjan búning United sem var frumsýndur í vikunni. En það var ekki það sem vakti mesta athygli netverja.

Armeninn virðist nefnilega hafa bætt vel á sig í sumarfríinu ef marka má myndina.

Gárungarnir grínuðust m.a. með að Mkhitaryan væri að ganga með Romelu Lukaku sem gengur væntanlega í raðir United á næstu dögunum.

United ákvað á endanum að eyða Twitter-færslunni. Internetið gleymir hins vegar engu og hér fyrir neðan má sjá þessa umtöluðu mynd af Mkhitaryan.


Tengdar fréttir

Lukaku á leið til Man Utd

Enskir fjölmiðlar greina frá því að Manchester United hafi komist að samkomulagi við Everton um kaup á belgíska framherjanum Romelu Lukaku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×