Fótbolti

Sló met Freddys Adu og er yngstur í sögunni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Cavan Sullivan þykir mikið efni.
Cavan Sullivan þykir mikið efni. getty/Andrew Katsampes

Cavan Sullivan varð í nótt yngstur í sögunni til að spila fyrir lið í efstu deild í hópíþrótt í Bandaríkjunum.

Sullivan kom inn á sem varamaður í 5-1 sigri Philadelphia Union á New England Revolution í MLS-deildinni í fótbolta í nótt.

Sullivan er aðeins fjórtán ára og 293 daga gamall og sló þar með met Freddys Adu sem var fjórtán ára og 306 daga gamall þegar hann spilaði fyrir DC United fyrir tuttugu árum.

Adu óskaði Sullivan til hamingju með að hafa slegið metið sitt á samfélagsmiðlum.

„Það er erfitt að slá þetta met en strákurinn gerði það. Vel gert og gangi þér vel minn maður,“ skrifaði Adu.

Sullivan samdi við Philadelphia Union í maí en hann fer til Manchester City þegar hann verður átján ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×