Smart sokkar inn um lúguna 25. nóvember 2017 11:00 Gunnsteinn Geirsson er stoltur af glaðlegu og fallegu sokkunum. MYND/ERNIR
Langar þig að eignast fallega, skrautlega og litríka sokka í hverjum mánuði? Smartsocks.is er ný þjónusta á Íslandi sem gengur út á áskrift að sokkum. Nýir sokkar inn um bréfalúguna í hverjum mánuði hljómar spennandi. Allir sokkarnir hjá smartsocks.is eru í skærum fallegum litum og mismunandi mynstrum. Hægt er að velja hefðbundna áskrift eða gjafaáskrift. Einnig getur fólk valið um að fá eitt par af sokkum eða tvö. Allir sokkarnir eru úr 100% bómull og eru í stærðunum 34-39 og 38-45. Ef fólk vill kaupa gjafaáskrift, til dæmis í jólagjöf, er hægt að velja hvort viðkomandi fái nýja sokka í 3, 6 eða 12 mánuði.Sokkarnir eru til í margvíslegum útgáfum.MYND/ERNIR„Við höfum fengið mjög góð viðbrögð við þessari þjónustu og erum þegar komnir með tæplega 300 manns í áskrift. Svo hefur gjafaáskriftin verið vinsæl enda frábær gjöf. Sokkarnir eru bæði fyrir karla og konur en við erum ekki enn komnir með barnasokka,“ segir Gunnsteinn. „Ég sé fyrir mér að gjafaáskriftin gæti hentað vel sem gjöf á bóndadaginn, sem jólagjöf eða við önnur skemmtileg tækifæri,“ bætir hann við. „Þá er fólk að fá óvæntan glaðning í nokkra mánuði og má í rauninni segja að verið sé að gefa 3, 6 eða 12 jólagjafir sem dæmi.“Það hefur aukist mikið að fólk vilji litríka og glaðlega sokka.Óvænt útlit í hverjum mánuði Smart Socks er ekki verslun sem selur eitt og eitt par. Eingöngu er hægt að kaupa sokkana í gegnum áskrift. „Það skemmtilega við þessa hugmynd er að viðskiptavinurinn veit aldrei hvernig sokka hann fær. Sömuleiðis fær hann aldrei tvenna eins sokka yfir heilt ár. Hugmyndin að fyrirtækinu kemur að utan. Við erum tveir Íslendingar sem rekum Smart Socks og erum ekki í samstarfi við neina erlenda aðila. Okkur langaði bara að gera þetta og erum báðir í vinnu annars staðar. Félagi minn, Guðmundur Már Ketilsson, fékk þessa hugmynd síðasta vetur og bar hana undir mig. Hann hafði kynnst þessu í Bandaríkjunum þar sem þetta er mjög vinsælt, bæði með sokka og aðrar vörur, til dæmis snyrtivörur og íþróttafatnað. Við höfum rætt hvort við ættum að selja nærbuxur með sama hætti en þetta er allt í skoðun enda fyrirtækið enn ungt,“ segir Gunnsteinn.Gjafaáskriftin hentar vel sem gjöf á bóndadaginn, sem jólagjöf eða við önnur skemmtileg tækifæri.Lífga upp á daginn „Við erum með 150 mismunandi gerðir. Þetta eru mjög fallegir og vandaðir sokkar. Við höfum fengið sérstaklega góð viðbrögð við því hversu sokkarnir eru litríkir, skrautlegir og skemmtilegir. Það hefur aukist mikið að fólk vilji litríka og glaðlega sokka. Ég er búinn að ganga mikið í mínum sokkum og get fullyrt að þeir eru sterkir og endingargóðir. Í fyrstu ætluðum við eingöngu að hafa sokka fyrir karlmenn en sáum síðan að þeir passa jafnt fyrir konur. Ég gekk alltaf í svörtum eða hvítum sokkum eins og flestir aðrir en eftir að ég kynntist þessum sokkum fer ég ekki í aðra. Það er miklu skemmtilegra að ganga í skrautlegum sokkum. Eftir smá tíma í áskrift á fólk orðið gott sokkasafn og enga eins. Smart sokkarnir lífga upp á daginn og við afgreiðum sokkana fljótt til áskrifenda.“Sendingakostnaður er innifalinn í verðinu á Smart Socks.Þessi grein er kynning á vegum Smart Socks. Nánari upplýsingar, kaup á áskrift og myndir af sokkunum er á heimasíðunni smartsocks.is.
Mest lesið Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Lífið „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Lífið Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne Lífið María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Lífið Krakkatían: Flugfélög, landafræði og krakkalög Lífið Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Lífið Er alltaf hrædd Lífið „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó Lífið Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Lífið Fleiri fréttir Jólin byrja í Kjötkompaní Afsláttur í BYKO fyrir fólk í framkvæmdum Fagnaðu 30 ára afmæli lakkrístoppsins Lærðu allt um kokteila í Kokteilaskólanum „Að fá þykkt og fallegt hár hefur fyrst og fremst gefið mér aukið sjálfstraust“ Maca jurtin styður einstaklega vel við hormónajafnvægi kvenna á breytingaskeiðinu Hvað leynist í jólapökkum starfsfólks? Fæturnir bera mig nú hraðar og lengra Vegleg afmælistilboð á gæðavörum í eldhús og baðherbergi Ég hætti að lifa bara af - og fór að LIFA, að vera þátttakandi í lífinu Valgerður fann fljótt mun á líðan sinni þökk sé Femarelle Hvað ef þú gætir breytt framtíð húðar þinnar? Bæta við upphæð viðskiptavina til styrktar Bleiku slaufunni Byltingarkennd nýjung fyrir blondínur frá JOHN FRIEDA Sykursalur orðinn einn vinsælasti veislusalur Reykjavíkur Ný vetrarlína Moomin væntanleg í takmörkuðu upplagi „Bio-Kult er eitt af því sem er alltaf til á okkar heimili“ Bragi Páll og Bergþóra með hryllilega fyndnar hrekkjavökusögur Ný eldhúslína sem sækir innblástur í náttúruna Sprite Zero Klan gefur út SS pylsulagið í fullri lengd Tilkoma Neubria leikbreytir að sögn Bergsveins Náttúruleg leið til að endurbæta meltinguna! Um 12.000 manns hafa séð sýninguna Orð gegn orði í Þjóðleikhúsinu MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Sjá meira