Samkvæmt heimildum Vísis er Egill Magnússon á leið heim í Stjörnuna. Honum er ætlað að fylla skarðið sem Ólafur Gústafsson skildi eftir sig.
Egill, sem er 21 árs, sló í gegn með Stjörnunni tímabilið 2014-15 þar sem hann skoraði m.a. 17 mörk í leik gegn Val. Eftir tímabilið fór Egill til danska úrvalsdeildarliðsins Team Tvis Holstebro.
Meiðsli gerðu Agli erfitt fyrir og hann lék lítið með Holstebro. Hann freistar þess nú að komast aftur á beinu brautina með Stjörnunni.
Egill, sem er rétthent skytta, var í lykilhlutverki í íslenska U-19 ára liðinu sem vann til bronsverðlauna á HM í Rússlandi 2015.
Vonir standa til að Egill verði kominn með leikheimild í tæka tíð fyrir leikinn gegn Aftureldingu á sunnudaginn.
Stjarnan situr í 4. sæti Olís-deildarinnar með þrjú stig eftir tvær umferðir.
Egill á leið í Stjörnuna

Tengdar fréttir

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Fram 25-25 | Fram ýtti frá sér
Eftir stóran skell í fyrstu umferð sýndi Fram miklu betri leik í Mýrinni í kvöld og nældi í stig.

Ólafur til Kolding
Ólafur Gústafsson er á förum til danska liðsins KIF Kolding Köbenhavn frá Stjörnunni samkvæmt heimildum íþróttadeildar.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Selfoss 29-26 | Garðbæingar byrja tímabilið á sigri
Garðbæingar litu vel út í opnunarleik Olís-deildarinnar en þeir leiddu um tíma með átta mörkum í sannfærandi sigri gegn Selfyssingum.