Innlent

Rannsókn á orsökum dauðsfalla nær ómöguleg

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir. vísir/valli
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur að það geti reynst nánast ómögulegt að finna orsök þriggja listeríusýkinga sem kostuðu þrjá lífið fyrr á þessu ári. Af þeim sem létust var einn nýburi sem lést í ágúst síðastliðnum og virðist hafa sýkst í móðurkviði. Hinir tveir voru eldri einstaklingar með undirliggjandi alvarlega sjúkdóma sem létust í maí og júní.

Greint var frá því í Farsóttafréttum, fréttabréfi sóttvarnalæknis, í gær að það sem af er ári hafi sex einstaklingar greinst með listeria monocytogenes sem veldur listeríu­sýkingu, þar af móðir og nýburi.

Bakteríuna má finna í ógerilsneyddri mjólk og afurðum hennar og í hráum fiski. Sýkingin getur verið skæð þeim sem eru með skert ónæmiskerfi, nýburum og eldra fólki. Engin tilfelli voru skráð árin 2015 og 2016. Fram kemur í Farsóttafréttum að rannsókn á dauðsföllunum standi yfir. Þórólfur er þó ekki bjartsýnn. „Við héldum að við gætum kannað þetta betur en það er þannig með sýkingar sem berast með matvælum að það þarf að fara snemma af stað, fá vitneskjuna nánast strax og þetta gerist og fara af stað með rannsóknir. En það er eiginlega ekki hægt þegar svona langt er liðið frá og ég held að í þessum tilvikum sé það nánast ómögulegt.“

Þórólfur segir að hlutfall látinna af völdum sýkingarinnar á árinu sé mjög há, eða 50 prósent af þeim tilfellum sem komið hafa upp.

„Það skiptir máli ef þeir sem sýkjast eru með undirliggjandi sjúkdóm eða undirliggjandi vandamál sem gera þá veikari fyrir. Það var þannig í þessum tilfellum. Svo getur þetta verið mjög alvarleg sýking hjá þunguðum konum. Þar geta sýkingar verið mjög bráðar og mjög hættulegar eins og reyndist því miður vera í þessu eina tilfelli þarna.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×