Martial sá um Tottenham Arnar Geir Halldórsson skrifar 28. október 2017 13:15 Sigurmarkinu fagnað vísir/getty Manchester United styrkti stöðu sína í 2.sæti ensku úrvalsdeildarinnar þegar liðið vann sigur með minnsta mun gegn Tottenham á Old Trafford í dag. Tottenham lék án sinnar skærustu stjörnu, Harry Kane, en Jose Mourinho stillti engu að síður upp þremur miðvörðum og fór sér engu óðslega. Leikurinn var fremur tíðindalítill. Dele Alli fékk besta færi Tottenham eftir rúmlega klukkutíma leik og skömmu síðar komst Romelu Lukaku nálægt því að skora fyrir heimamenn. Fyrsta og eina mark leiksins kom svo á 80.mínútu þegar varamaðurinn Anthony Martial slapp í gegn og kláraði færið sitt afar vel. Enski boltinn