Innlent

Haldlögðu 10 þúsund tonn af ólöglegum matvælum og 26,4 milljónir lítra af ólöglegum drykkjum

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Fyrir hönd Íslands tóku íslenska tollgæslan og Matvælastofnun þátt í aðgerðinni sem var gerð á vegum Europol og Interpol.
Fyrir hönd Íslands tóku íslenska tollgæslan og Matvælastofnun þátt í aðgerðinni sem var gerð á vegum Europol og Interpol. Vísir/Anton
Tæplega 10 þúsund tonn af ólöglegum matvælum, rúmar 26.4 milljónir lítra af ólöglegum drykkjarvörum og 13 milljónir eininga af annarri ólöglegri framleiðslu voru gerð upptæk í viðamikilli alþjóðlegri aðgerð undir heitinu Opson VI, sem lauk nýverið. Áætlað andvirði varningsins nam 230 milljónum evra.

Framleiðslan var gerð upptæk vegna mögulegrar hættu á að hún væri skaðleg heilsu almennings og var hún mjög fjölbreytt. Lagt var hald á allt frá áfengi, sódavatni, kryddteningum, sjávarréttum og ólívuolíu til lúxusvarnings eins og til dæmis kavíar.

Alls tók 61 land þátt í aðgerðinni. Hún hefur verið framkvæmd sex sinnum með vaxandi fjölda þátttakenda. Fyrir hönd Íslands tóku íslenska tollgæslan og Matvælastofnun þátt í Opson VI sem var gerð á vegum Europol og Interpol. Við aðgerðina nutu tollgæslan og MAST liðsinnis embættis ríkislögreglustjóra og tengslaskrifstofu íslands hjá Interpol. 

Ákveðið var að í þetta skipti skyldu skoðaðar einkasendingar með fæðubótarefnum og þá sérstaklega frá netverslunum í Bandaríkjunum. Sendingar voru stöðvaðar til að athuga hvort þær innihéldu ólögleg efni. Til dæmis fundust í þeim glúkósamín og melatónín, sem eru skilgreind sem lyf hérlendis. Einnig fundust svokölluð psychostimulants og nootropics, örvandi lyf og lyf sem efla heilastarfsemina en eru ekki leyfð hér.

„Samkvæmt Europol og Interpol staðfesti aðgerðin að glæpamenn svífast einskis þegar kemur að matvælasvikum og engin tegund matvæla eða drykkja er undanskilin. Mannslíf eru einskis virði ef hagnaðarvon er fyrir hendi,“ segir í tilkynningu frá tollgæslunni.

„Sem fyrr er markmið Opson aðgerðanna að vernda heilsu og öryggi almennings gegn ólöglegum matvælum og drykkjarvöru og jafnframt að stöðva slíka framleiðslu. Fóru allmargar handtökur fram í tengslum við aðgerðina.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×