Um er að ræða söngkeppni fyrir unga snillinga sjöunda árið í röð. Sigurvegarinn kemur fram í Eldborgarsal Hörpu með aragrúa af stjörnum laugardaginn 10. desember á stórtónleikunum Jólagestir Björgvins.
Dómnefnd hefur valið 12 söngvara sem skara fram úr og komu fyrstu sex fram á Stöð 2 í gær.
Í dómnefndinni eru þau Katrín Halldóra Sigurðardóttir, leik- og söngkona, og Gunnar Helgason, leikstjóri og rithöfundur og auðvitað okkar ástkæri Björgvin Halldórsson.
Alls verða þættirnir þrír og verður sigurvegarinn tilkynntur þann 31. nóvember. Hér að ofan má sjá þáttinn frá því í gær í heild sinni en hér að neðan má sjá hvern keppanda fyrir sig.
Eydís Eik Sigurðardóttir - 10 ára
Bjarni Gabríel Bjarnason - 9 ára
Sóley Jóhannesdóttir - 11 ára
Guðrún Steinunn Sigurgeirsdóttir - 14 ára
Jóhanna Karen Haraldsdóttir - 14 ára
Helga Sonja Matthíasdóttir - 14 ára