Fótbolti

Ronaldo fær 42 milljónir fyrir hverja mynd á Instagram

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ronaldo er vinsæll og veit af því.
Ronaldo er vinsæll og veit af því. vísir/getty
Stjörnurnar á Instagram fá vel greitt fyrir að birta myndir á samfélagsmiðlinum. Cristiano Ronaldo fær langmest af öllu íþróttafólki.

Í hvert skipti sem hann setur mynd á Instagram fær hann um 42 milljónir króna enda er hann oftar en ekki að auglýsa eitthvað á miðlinum.

Næstlaunahæsti íþróttamaðurinn á Instagram er körfuboltakappinn LeBron James en hann fær 12,5 milljónir króna fyrir myndina.

Þeir eru líka einu tveir íþróttamennirnir á topp tíu listanum yfir þá einstaklinga sem fá mest greitt fyrir myndina á Instagram.

Selena Gomez er á toppnum en Kim Kardashian kemur þar á eftir og Ronaldo er svo í þriðja sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×