Innlent

Lögreglan lýsir eftir Gunnari Þorsteinssyni

Atli Ísleifsson skrifar
Gunnar Þorsteinsson.
Gunnar Þorsteinsson.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Gunnari Þorsteinssyni. Í tilkynningu segir að Gunnar glími við Alzheimer, en síðast er vitað um ferðir hans frá heimili hans að Vesturgötu í Reykjavík í dag.

Gunnar er klæddur í dökkgráa flíspeysu, gallabuxum og í grænum stígvélum. Hann er grannvaxinn og 180 sentimetrar á hæð, er með stutt, dökkt hár og grátt í vöngum.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Gunnars eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.

Uppfært

Gunnar er kominn í leitirnar samkvæmt tilkynningu lögreglu klukkan 23:13.


Tengdar fréttir

Gunnar skilaði sér heim

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti í kvöld eftir Gunnari Þorsteinssyni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×