„Við vorum bæði í námi í Danmörku 2007 - 2010 og vorum bæði á námslánum,“ segir Sunna Ósk. „Það var þannig hjá LÍN að við fengum lánsfjárhæðina í íslenskum krónum, síðan þegar hrunið varð þá lækkaði sú fjárhæð bara og lækkaði, þá var námslánunum breytt í danskar krónur og við fengum ákveðna fjárhæð á mánuði, sem leiddi til þess að LÍN lánin hækkuðu.
Sunna Ósk og Sighvatur ákveða hins vegar að líta svo á að námslánin hafi verið fjárfesting í námi þeirra og öðru. Og þrátt fyrir að stunda bæði nám náðu þau að spara.

„Við leigðum á lægra verði á Suður-Jótlandi og bjuggum þar tvö saman í pínulítilli íbúð, um það bil 35 fermetrum, í þrjú ár. Við skömmtuðum okkur pening vikulega og fórum út í búð með ákveðna fjárhæð og vasareikni, svo vorum við komin upp í upphæðina og gátum þá ekki verslað meira í það skipti.“
Þegar þau komu aftur heim til Íslands árið 2010 fór Sighvatur í nám í Listaháskólanum, Sunna Ósk kláraði sitt nám næstu sex mánuði og fór svo á vinnumarkaðinn. „Við giftum okkur eftir að við komum heim og vorum búin að safna fyrir brúðkaupinu í þrjú ár,“ segir Sunna Ósk.
Fyrsta fasteignin ekki í draumahverfinu
Sunna Ósk og Sighvatur sáu alltaf fyrir sér að búa í Mosfellsbæ. En það voru foreldrar Sighvats sem byrjuðu að skoða íbúðir með þau í huga og bentu þeim á íbúð í Grafarvogi.„Grafarvogur var ódýrara hverfi en Mosfellsbær,þetta er rosalega fín íbúð og við gátum ekki keypt stærra eða dýrara,“ segir Sunna Ósk en þau keyptu íbúðina sína 2012. „Við áttum smá sparnað sjálf og síðan eigum við gott bakland og foreldrar okkar og afar og ömmur hjálpuðu okkur til að eiga fyrir útborgun.“

„Í fyrsta lagi að reyna að vera í þannig aðstæðum að geta safnað, vera sem lengst heima hjá foreldrum ef það er í boði. Ekki drífa sig að kaupa, bara til að kaupa. Í öðru lagi að passa sig að vera ekki með of miklar kröfur, en samt að vera sáttur þar sem maður býr. Maður getur ekki fengið allt sem maður vill,“ segir Sunna Ósk.
Þau ráðleggja ungu fólki að byrja strax að spara, jafnvel strax við fermingu þegar mörg fermingarbörn fá mikla fjármuni að gjöf. „Við eyddum öllum fermingarpeningunum okkar um leið,“ segir Sunna Ósk. „Annað en mágkona mín sem ávaxtaði sína fermingarpeninga inni á framtíðarreikningi, sá peningur var síðan byrjun upp í sparnað fyrir hennar fyrstu íbúð sem hún hefur nýlega fest kaup á.
„Byrjaðu bara nógu snemma að spara og eins ættu foreldrar að fræða börnin sín og kenna þeim að fara rétt með peninga.“
Þetta var saga Sunnu Óskar og Sighvats, hvernig viltu að þín saga verði? Pantaðu ráðgjöf og komdu til okkar og gerðu þitt plan.
Greinin er kostuð af Íslandsbanka en hún er hluti af Það er hægt, verkefni bankans um fyrstu kaup á fasteign.