Fótbolti

Lærisveinar Heimis komnir með 10 stiga forskot

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Heimir er að gera frábæra hluti í Færeyjum
Heimir er að gera frábæra hluti í Færeyjum vísir\vilhelm
Lærisveinar Heimis Guðjónssonar í HB í Færeyjum eru að gera frábæra hluti í færeysku deildinni. HB er komið með tíu stiga forskot á toppi deildarinnar.



HB tók á móti AB Argir í dag en leikurinn var spilaður í Þórshöfn.



Adrian Justinussen kom HB yfir strax á 11. mínútu leiksins og Símun Samuelsen, sem gerði góða hluti með Keflavík hér á árum áður, bætti við öðru marki heimamanna þremur mínútum síðar.



Bartal Wardum innsiglaði svo öruggan þriggja marka sigur með marki á 69. mínútu.



Sex umferðir eru eftir í færeysku deildinni og er HB á góðri leið með að verða meistarar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×