Tottenham lék sér að Chelsea Anton Ingi Leifsson skrifar 24. nóvember 2018 19:30 Leikmenn Tottenham fagna marki Soung-Heung min í kvöld. vísir/getty Tottenham spilaði frábæran fótbolta er liðið vann 3-1 sigur á Chelsea í stórleik fjórtándu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar en liðin mættust á Wembley í kvöld. Tottenham byrjaði af miklum krafti og eftir átta mínútur var staðan orðinn 1-0 eftir að Dele Alli skallaði hornspyrnu Danans Christian Eriksen í netið. Einungis átta mínútum síðar var staðan 2-0. Harry Kane fékk þá boltann fyrir utan teiginn og hamraði boltann í átt að marki Chelsea. Boltinn söng í netinu og heimamenn komnir í 2-0 eftir stundarfjórðung. Þeir hefðu getað bætt við fleiri mörkum í fyrri hálfleik en þeir hreinlega óðu í færum. Kepa Arrizabalaga varði og varði í marki Chelsea og þeir voru stálheppnir að vera bara 2-0 undir í hálfleik. Þriðja markið kom á 54. mínútu er Son Heung-min skoraði þriðja markið eftir frábæran einleik en undir lokin minnkaði varamaðurinn Oliver Giroud muninn fyrir Chelsea, fimm mínútum fyrir leikslok. Lokatölur 3-1. Tottenham er komið upp í þriðja sæti deildarinnar, en þeir eru fimm stigum á eftir toppliði Manchester City. Chelsea er í fjórða sætinu, tveimur stigum á eftir Tottenham. Viðtal við Pochettino: Viðtal við Sarri: Enski boltinn