Skotárás á hóteli í Kabul Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 20. janúar 2018 23:17 Frá vettvangi í Kabúl Vísir/EPA
Minnst fjórir menn hófu skotárás á Intercontinental hótelið í Kabúl fyrr í dag. Tveir árásarmannanna eru látnir og samkvæmt innanríkisráðuneytinu í Afganistan er verið að reyna að hafa uppi á hinum tveimur. Fréttaveita AFP hafði eftir opinberum starfsmanni að árásarmennirnir væru að skjóta á gesti hótelsins og að minnst fimm séu særðir. Svæðismiðlar í Afganistan halda því hins vegar fram að nokkrir séu þegar látnir. Árásin hófst klukkan 21 að staðartíma og bárust fregnir að því að árásarmennirnir hefðu skotið öryggisverði á leið sinni inn á hótelið. Fyrir nokkrum dögum síðan varaði bandaríska sendiráðið í Kabúl við hótelum í borginni. „Okkur hefur verið gert viðvart að öfgahópar gætu verið að skipuleggja árás á hótel í Kabúl,“ sagði í tilkynningu frá sendiráðinu á fimmtudag. Annar opinber starfsmaður innanríkisráðuneytisins í Afganistan sagði við AFP að rannsókn væri þegar hafin á því hvernig árásarmennirnir hafi komist fram hjá öryggisvörðum hótelsins. „Þeir notuðu líklega bakdyr í eldhúsinu til að komast inn,“ sagði hann. Intercontinental hótelið er í ríkiseigu og er vinsæll staður fyrir fjöldasamkomur svo sem brúðkaup, ráðstefnur og stjórnmálafundi. Talibanar gerðu árás á hótelið árið 2011 og létust þá 21 þar af níu árásarmenn.
Mest lesið „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Innlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Fleiri fréttir Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Sjá meira