Lífið samstarf

Áhrifarík meðferð við þynningu hárs

Halldór Jónsson ehf kynnir
Nioxin hárvörurnar eru heimsþekktar og virka gegn hárþynningu og hárlosi, bæði hjá körlum og konum,“ segir Heiðbjört Unnur Gylfadóttir, vörumerkjastjóri Nioxin hjá Halldóri Jónssyni.

Heiðbjört Unnur Gylfadóttir, vörumerkjastjóri hjá Halldóri Jónssyni.
„Hárlos getur stafað af mörgum mismunandi ástæðum og hefur Nioxin hannað þrískipt kerfi fyrir mismunandi hárgerðir sem byggir á þvotti, næringu og eftirmeðferð, sem tekur á húðheilbrigði, þéttleika og umfangi hársins.

Hársvörðurinn er jafn mikilvægur og andlit okkar og þarfnast því sömu athygli og umhirðu. Nútímaleg nálgun Nioxin byggir á húðumhirðu og er hönnuð til að styrkja, næra og hlúa að hárinu í heild því þó svo að Nioxin hárvörurnar séu hannaðar með hársvörðinn í fyrirrúmi, nýtur hárið ekki síður góðs af," segir Heiðbjört.

Fagleg rágjöf

Nioxin fæst eingöngu á hársnyrtistofum og mælir Heiðbjört með því að þeir sem finni fyrir hárlosi eða hárþynningu, fái ráðgjöf á sinni hársnyrtistofu. Einnig er hægt að fara inn á vefsíðuna www.nioxin.com þar sem hægt er að taka próf og komast að því hvaða númer hentar hverju sinni.

Er Nioxin fyrir alla  ?

„Nioxin er fyrir alla þá sem finna fyrir hárþynningu eða hárlosi. Rétta lausnin veltur á því hvernig hár viðkomandi er með, er það náttúrulegt eða litað eða hefur hárið verið meðhöndlað með efnum? Einnig skiptir máli hvort mikil eða lítil þynning á sér stað."

Mótunarlína Nioxin

„Nioxin 3D mótunarlínan hefur auðveldað fjölda viðskiptavina okkar að viðhalda fyllingu og umfangi hársins þar sem vörurnar stífla ekki hársekkina eða þyngja hárið. Mótunarlínan hentar því fullkomlega fyrir alla sem vilja meiri umönnun, fyllingu og léttleika."  

Þurrsjampó gefur meiri fyllingu

„Instant Fullness þurrsjampóið eflir virkni þrískipta kerfisins og gefur hárinu allt að 2x meiri fyllingu. FUSI ON FIBRIL™ tæknin fjarlægir umfram húðfitu sem getur myndast yfir daginn, ásamt því að skapa rými milli einstakra hárstráa. Efnið má bursta úr hárinu og er þá hársvörðurinn endurnærður. Ég persónulega elska þetta þurrsjampó og nota það mjög mikið,“ segir Heiðbjört.

Þessi kynning er unnin í samstarfi við söluaðila Nioxin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.