Íslenskum hesti misþyrmt á hrottafenginn hátt í Hollandi Samúel Karl Ólason skrifar 25. janúar 2018 12:10 Lögreglan hefur tekið málið til rannsóknar og meðal annars stendur til að rannsaka blóðið sem fannst í Ösku og önnur ummerki á svæðinu.
Eigendur hestabýlisins Thrastar í bænum Beetsterzwaag í Fríslandi í Norður - Hollandi þurftu að aflífa íslenska hryssu eftir að henni hafði verið misþyrmt á hrottafenginn hátt. Dýralæknir segir að spýtu eða grein hafi verið stungið upp í skeið hryssunnar, en svo eru nefnd leggöng hryssna. Innvortis í hryssunni fannst einnig mannablóð. Aska var svo sködduð að hún var aflífuð. Mirjam Scholte, eigandi Ösku, segir Sa24.nl að ekkert hafi amað að þegar hún yfirgaf hesthúsið á sunnudagskvöldið. Hins vegar hafi Aska fallið niður þegar komið var að hestunum á mánudagsmorgni.Lögreglan hefur tekið málið til rannsóknar og meðal annars stendur til að rannsaka blóðið sem fannst í Ösku og önnur ummerki á svæðinu. „Ég er enn í áfalli,“ sagði Scholte. „Samkvæmt dýralækninum var Ösku misþyrmt með spýtu eða grein. Hræðilegt. Einnig fannst mannablóð inni í henni. Ég vil ekki ímynda mér hvað gerðist þarna. Hver gerir svona?“Snara um háls Ösku Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Scholte kemur að Ösku þar sem ekki er allt með feldu. Fyrir um hálfu ári kom Scholte að hryssunni þar sem einhver hafði sett snöru um háls hennar. Aska var flutt til Hollands frá Íslandi fyrir tveimur árum, en hún var sex vetra gömul. Til stóð að nota hana í keppni og rækta svo undan henni í framtíðinni. Á Thrastar er rekin hestatengd starfsemi þar sem börn og fullorðnir geta riðið út á íslenskum hestum. Frísland er þekkt hestahérað í Hollandi. Búið er að efna til fjáröflunar fyrir Scholte vegna fjárhagslegs tjóns hennar, bæði vegna Ösku og vegna þess að hestakerru var stolið af henni.
Mest lesið Geir Örn lést á Stuðlum Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Hafnað vegna of margra lækna og miðaldra karla Innlent Skoða hvort lög hafi verið brotin við rannsókn lögreglu Innlent Sonurinn áður stungið föður sinn í bakið Innlent Loka hjúkrunarheimilinu Roðasölum: „Ég er miður mín að lesa þetta“ Innlent Rósa Björk snýr aftur og Katrín á lista VG Innlent Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn nákomnu stúlkubarni Innlent Ógnarstór loftsteinaárekstur eins og áburður fyrir líf á jörðinni Erlent Valdníðsla og hneyksli Innlent Fleiri fréttir Ásókn karla á lista Samfylkingarinnar geti reynst flokknum erfið Með í maganum og stígur út fyrir þægindarammann Fleiri vilja sjá Þórdísi eða Guðlaug leiða í stað Bjarna Augljóslega veikir einstaklingar verði veikari í fangelsi Aldrei fleiri manndráp á einu ári: „Þetta er uggvænleg þróun“ Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn nákomnu stúlkubarni Tæplega þrjátíu börn í virku eftirliti Valdníðsla og hneyksli Kunnugleg andlit á lista Framsóknar í Norðvesturkjördæmi Metfjöldi manndrápsmála, æsispennandi kosningar og tónlist í beinni Rósa Björk snýr aftur og Katrín á lista VG Gerir engar kröfur um ráðherrastól Gerði ekki kröfu um oddvitasæti og fær annað sætið Hafnað vegna of margra lækna og miðaldra karla Dæmdur fyrir hatursorðræðu gegn Samtökunum '78 Dagur mun ekki skipa oddvitasæti í Reykjavík Ragna fær annað sætið í Reykjavík suður Viðgerðin á flugvél Gæslunnar kostaði 350 milljónir króna Þrúgandi þögn fyrir stóru ákvörðun Kristrúnar „Hættan af þessum mönnum var þekkt” Kynferðisofbeldi gegn börnum með notkun gervigreindar Fleiri dæmi um alvarlega árás á móður sína Gagnlegt að sjá hvernig Sjálfstæðisflokkurinn umgengst völd Páll leitar til ríkissaksóknara Beiðni um leyfi til hvalveiða liggur þegar fyrir Skoðaði hvað fólk gerði á Facebook án samþykkis Umsókn frá Kristjáni á borði Jóns og Bjarna Árásarmaðurinn á Dubliner fær ekki áheyrn í Hæstarétti Geir Örn lést á Stuðlum Loka Fjölskyldulandi í næstu viku Sjá meira