Fótbolti

Tap hjá Augsburg

Dagur Lárusson skrifar
vísir/getty
Alfreð Finnbogason var eins og venjulega í byrjunarliði Augsburg gegn Wolfsburg í þýsku deildinni í dag.

 

Það voru gestirnir frá Wolfsburg sem byrjuðu leikinn betur með marki á 33. mínútu en þar var á ferðinni Joshua Guilavogui. Áður en flautað var til hálfleiksins þá var staðan orðin 0-2 þar sem William bætti við öðru marki Wolfsburg.

 

Liðsmenn Augsburg mættu ákveðnir til seinni hálfleiksins og náðu að minnka muninn strax á 49. mínútu með marki frá Rani Khedira og aðeins tíu mínútum seinna jafnaði Cordova metið fyrir Ausburg og stefndi því allt í æsispennandi lokamínútur.

 

Bæði lið reyndu hvað þeir gátu að skora sigurmarkið og var það Wolfsburg sem náði að skora í uppbótartíma. Grátlegt fyrir Alfreð og félaga.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×