Llorente skoraði gegn gömlu félögunum │ Sjáðu markið Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 2. janúar 2018 21:45 Llorente biður stuðningsmenn Swansea afsökunar á marki sínu Vísir/Getty Tottenham vann nokkuð öruggan 2-0 sigur á Swansea í ömurlegum aðstæðum í Wales í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Fyrrum Swansea-maðurinn Fernando Llorente kom Tottenham yfir strax á 12. mínútu með skallamarki eftir fyrirgjöf Christian Eriksen. Markið hefði þó aldrei átt að standa þar sem Llorente var rangstæður, en Robert Madley dómari leiksins lét það standa. Dele Alli gulltryggði sigur Tottenham, sem Swansea ógnaði þó í raun aldrei, undir lok leiksins þegar hann skoraði annað mark gestanna eftir frábæra sendingu Harry Kane. Tottenham fer með sigrinum upp fyrir Arsenal og í fimmta sæti deildarinnar. Annars staðar sigraði Crystal Palace Southampton á útivelli og stökk upp í 14. sæti deildarinnar. Roy Hodgson heldur áfram að rífa Palace upp töfluna. Andy Carroll tryggði West Ham sigur á West Bromwich Albion í uppbótartíma eftir að James McClean hafði komið WBA yfir í fyrri hálfleik. Albion hefur því farið 20 leiki í deildinni án sigurs. Enski boltinn