Eins og ein stór fjölskylda Grandi101 kynnir 2. janúar 2018 09:00 Tvíburasysturnar Elín og Jakobína og eiginmenn þeirra, Númi Snær og Grétar Ali Khan.
KYNNING: Grandi101 er ný líkamsræktar- og CrossFit stöð sem er í gömlu Hleragerðinni á Fiskislóð 49-51 úti á Granda. Stöðin er fjölskyldufyrirtæki í eigu tvíburasystra og eiginmanna þeirra. Á Granda101 er áhersla lögð á fagmennsku, persónulega þjónustu og skynsemi í þjálfun. Við viljum aðstoða fólk við að verða besta útgáfan af sjálfu sér með aukinni hreyfingu, bættu mataræði og síðast en ekki síst nánu og skemmtilegu samfélagi,“ segir Elín Jónsdóttir en Grandi101 er fjölskyldufyrirtæki í eigu tvennra hjóna, tvíburasystranna Elínar og Jakobínu Jónsdætra og eiginmanna þeirra, Núma Snæs Katrínarsonar og Grétars Ali Khan. Á Granda101 er boðið upp á tvenns konar þjálfunarmöguleika – CrossFit og GrandaFit og hafa meðlimir stöðvarinnar aðgang að báðum tímum.„Við hvetjum fólk til að mæta til okkar og prófa. Það fær skemmtilegustu líkamsrækt í heimi.“„Meginmunurinn á þessum tímum eru í rauninni ólympísku lyftingarnar sem við gerum í CrossFit en ekki í GrandaFit. Í GrandaFit erum við mikið að vinna með eigin líkamsþyngd, ketilbjöllur o.s.frv. og meiri áhersla er lögð á lengri úthaldsæfingar. Það má því segja að í GrandaFit séu æfingarnar tæknilega einfaldari, þó ekki auðveldari, en í CrossFit og því henta þeir tímar oft á tíðum betur þeim sem eru að byrja hjá okkur og hafa ekki stundað samskonar þjálfun áður. Flestir byrja á að mæta í GrandaFit tímana en eftir nokkur skipti vilja margir mæta í CrossFit tímana líka, enda skemmtilegt að auka á fjölbreytnina og taka tímana til skiptis.“ Fjölskyldufyrirtæki með sálElín segir þau hjónin lengi hafa rætt á léttu nótunum um að opna CrossFit stöð úti á Granda. „Við systurnar erum aldar upp á Seltjarnarnesi þar sem við búum öll í dag og okkur fannst vanta CrossFit stöð í vesturborgina.“ Númi rak CrossFit Nordic í Stokkhólmi þar sem þau Elín bjuggu en Jakobína hefur þjálfað CrossFit í fleiri ár hér heima en þau hafa öll verið viðriðin íþróttina í mörg ár. Tækifærið datt svo óvænt í hendurnar á þeim sumarið 2016. „Í ágúst í fyrra vorum við Elín á Íslandi í sumarfríi og fórum á rúntinn niður á Granda. Við enduðum fyrir framan þetta hús, gömlu Hleragerðina, og sáum að þar var engin starfsemi. Við grófum upp eiganda hússins, hringdum í hann og okkur bauðst að leigja húsið. Í framhaldinu ákváðum við fjögur svo að slá til og leggja allt undir,“ segir Númi. „Grandi101 er því fjölskyldufyrirtæki og við leggjum hjarta okkar og sál í þetta.“ Við tók gífurleg vinna þar til stöðin var opnuð í lok febrúar á þessu ári. Húsnæðið hýsti áður járnsmíðaverkstæði en Númi segir þau strax hafa hafa séð mikla möguleika í húsinu. „Hér voru smíðaðir toghlerar á skip. Við hreinsuðum allt út, háþrýstiþrifum húsið og máluðum hvern flöt, allt með mikilli hjálp fjölskyldu og vina. Húsnæðið er enn í vinnslu en hér er allt sem þarf, tveir stórir salir, góðar sturtur og rúmgóðir búningsklefar, setustofa og meðhöndlunarherbergi,“ segir Númi.Ketilbjöllur, boltar og lóð. Stöðin er vel búin áhöldum.Námskeið í janúarKrakkaFit-, UnglingaFit-, MömmuFit- og grunnnámskeið eru í boði á Granda101. „Við fyllum hvert námskeiðið á fætur öðru og gætum ekki verið ánægðari með viðtökurnar, þær eru framar björtustu vonum,“ segir Jakobína. „Við mælum með því að fólk taki grunnnámskeið, sem er ein helgi frá kl. 13-16, áður en það mætir í almenna tíma þó það sé ekki krafa hjá okkur eins og staðan er í dag. Fyrir þá sem vilja byrja strax þá bjóðum við upp á tæknitíma í stundaskrá en við erum einnig með frábæra þjálfara sem fara vel yfir tækni í hverjum tíma og sér um að fólk geri engar æfingar sem það ræður ekki við.“ Skráning á námskeiðin sem hefjast í janúar er hafin.Aðstaðan er öll til fyrirmyndar í Granda101. Húsnæðið var áður járnsmíðaverkstæði sem tekið var rækilega í gegn.Heimilislegt andrúmsloft„Þetta er dálítið annað en að æfa í venjulegri líkamsræktarstöð. Við erum eins og ein stór fjölskylda og hér er mjög heimilisleg stemning. Hér æfir fólk alltaf undir leiðsögn og er með sama hópnum á æfingum. Þetta er samfélag og fólk hlakkar til að mæta á æfingar,“ segir Númi. „Við hvetjum fólk til að mæta til okkar og prófa. Það fær skemmtilegustu líkamsrækt í heimi.“Hægt er að fylgjast nánar með Granda101 á heimasíðu stöðvarinnar, www.grandi101.is, Facebook síðu (Grandi101) sem og á Instagram (Grandi101).
Mest lesið Færeyjaferð endaði á Hotel Cabin: „Búnar að hlæja viðstöðulaust síðan við fórum upp á völl“ Lífið Bannað að ræða fótbolta og heimilisfjármálin á stefnumótum Makamál Smakkaði skötu í beinni: „Sjitturinn, kött!“ Matur Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Íslendingar tilnefndir til Emmy-verðlauna Bíó og sjónvarp Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Fleiri fréttir Má augnskugginn þinn fara í kringum augun? Myndaveisla frá Kótilettunni þar sem Bylgjulestin var í beinni Spennandi ferðir til Taílands og Balí í haust Bylgjulestin á Kótelettunni Komdu í veg fyrir bitglaðar blóðsugur í sumar! Rómantísk bylgja í lestri með hækkandi sól Einstök upplifun í sveitasælu Óbrjótanleg lúxusglös í útileguna Myndaveisla frá Akureyri þar sem Bylgjulestin var í beinni Bylgjulestin verður í beinni frá Akureyri Nova klippir kaffiverðið Bylgjulestin var í beinni frá Humarhátíðinni Nýjar merkjavörur í hverri viku á Pop up markaði Optical Studio Nú set ég mig í fyrsta, annað og þriðja sætið Bylgjulestin á Humarhátíðinni um helgina Látum ekki lúsmýið skemma fyrir okkur gleðina - Bitin burt Sólgleraugu og umgjarðir á 40-70% afslætti - Pop up Optical Studio Hægðirnar segja til um heilsufarið – rétt fóður mikilvægt Hefði ekki trúað áhrifunum! Frábær stemming á Jósmessuhátíð á Eyrarbakka Farðu ljómandi í sumarið! Það má leika sér með matinn Bylgjulestin mætir á Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka um helgina „Finnst ég geta afkastað mun meira yfir daginn“ Heimili myndast þegar fjölskyldan ver tíma þar saman Bylgjulestin í bongóblíðu á Þingvöllum Myndaveisla: Enn eitt vel heppnað Streetball mót X977 Allt sem þú þarft fyrir Midsummer hátíðina Bylgjulestin verður á Þingvöllum laugardaginn 15. júní Viltu bæta svefngæði þín? Sjá meira