Fótbolti

Þorsteinn Már tryggði Stjörnunni sigur í Fótbolta.net mótinu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Stjörnumenn hafa átt gott undirbúningstímabil
Stjörnumenn hafa átt gott undirbúningstímabil Vísir/Eyþór
Úrslitin eru ráðin í A-deild Fótbolta.net mótsins en Stjarnan tryggði sér 1.sæti mótsins með 1-0 sigri á Grindavík í úrslitaleiknum sem fram fór í Kórnum í dag.

Þorsteinn Már Ragnarsson skoraði eina mark leiksins eftir tæplega hálftíma leik en hann gekk í raðir Garðabæjarliðsins í vetur frá Víkingi Ólafsvík.

Stjörnumenn léku einum manni færri síðasta hálftímann þar sem Jósef Kristinn Jósefsson, fyrrum leikmaður Grindavíkur, fékk að líta rauða spjaldið.

Stjarnan 1 - 0 Grindavík


1-0 Þorsteinn Már Ragnarsson ('29)

Rautt spjald: Jósef Kristinn Jósefsson, Stjarnan ('60)






Fleiri fréttir

Sjá meira


×