Einmana fuglinn Nigel er dauður Atli Ísleifsson skrifar 3. febrúar 2018 14:11 Staða Nigel var í raun vonlaus.
Fuglinn Nigel, sem um árabil hefur verið eina súlan á eyju nokkurri undan ströndum Fiji, er dauður. Fijimönnum hefur þótt sérstaklega vænt um Nigel sem var þekktur þar sem mest einmana fugl heims. Nigel hafnaði á eyjunni Mana eftir að yfirvöld gerðu tilraun til að lokka súlur til eyjarinnar. Það var gert meðal annars með því að mála steyptar súlur á eyjunni og þá voru send út hljóð úr hátalara sem ætlað var að lokka fugla til eyjarinnar. Nigel var hins vegar eina súlan sem svaraði kallinu. Hann kom til eyjarinnar árið 2013 og varð þar með fyrsta súlan á eynni í um fjörutíu ár. Engar aðrar súlur settust hins vegar að á eyjunni til að veita Nigel félagsskap.Newsweek greinir frá því að Nigel hafi hins vegar gert sitt besta og komið upp hreiðri fyrir einn af hinum steyptu fuglum. Nigel fannst dauður við hlið steypufuglsins í síðustu viku. „Burtséð frá því hvort hann hafi fundið til einmanaleika eða ekki þá fékk hann aldrei neitt til baka, og það hlýtur að hafa verið erfitt, þar sem hann gerði hosur sínar grænar fyrir fuglinum um árabil,“ segir Chris Bell, sem starfar við náttúruvernd á Fiji í samtali við Guardian. „Staða hans var í raun vonlaus.“
Dýr Fídji Mest lesið „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent Fleiri fréttir Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Sjá meira