Innlent

Fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Mikil stybba var í íbúðinni þegar slökkvilið bar að garði.
Mikil stybba var í íbúðinni þegar slökkvilið bar að garði. Vísir/Stefán
Einn var fluttur á slysadeild vegna gruns um reykeitrun i þegar mikill reykur kom upp í íbúð í Breiðholti laust eftir klukkan 23 í gærkvöldi.

Fyrst var tilkynnt um eld en síðar reyndist aðeins um reyk að ræða sem gaus upp út frá potti á eldavél, að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Mikil stybba var í íbúðinni þegar slökkvilið bar að garði og var hún reykræst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×