Tíska og hönnun

Þykir enn vænt um hvert einasta skópar

Guðný Hrönn skrifar
Magni og Hugrún hafa hannað um 1.200 skópör síðan Kron by Kronkron var stofnað fyrir 10 árum.
Magni og Hugrún hafa hannað um 1.200 skópör síðan Kron by Kronkron var stofnað fyrir 10 árum. Mynd/Kári Sverrir
Sýningin Undraveröld Kron by Kronkron verður opnuð á sunnudaginn í Hönnunarsafni Íslands. Á sýningunni verður rennt yfir feril hönnuðanna Hugrúnar Árnadóttur og Magna Þorsteinssonar með merkið Kron by KronKron. Nú eru liðin 10 ár síðan Hugrún og Magni hófu að framleiða skó, fatnað og fylgihluti undir því merki og þau hafa á þessum áratug náð merkilegum árangri í sviði hönnunar.

Það er óhætt að segja að þau hafi ekki setið auðum höndum síðan Kron by KronKron leit dagsins ljós því þau hafa hannað um 1.200 mismunandi skópör á þeim tíma. Þegar blaðamaður náði tali af Hugrúnu var hún í miðjum klíðum að kíkja ofan í gamla skókassa og undirbúa sýninguna.

„Núna er ég búin að vera lokuð inni á Hönnunarsafni í nokkra daga þar sem ég er að opna kassa eftir kassa eftir kassa. Ég veit aldrei hvað er í hverjum kassa og þetta er búið að vera magnað,“ segir Hugrún glöð í bragði. Spurð út í hvort hún muni eftir öllum skónum sem koma upp úr kössunum segir hún: „Maður er að sjá margt sem maður var auðvitað búinn að gleyma. En vegna þess að við teiknuðum hvert einasta par upp og komum þeim í gegnum framleiðsluferli, sem getur verið alveg meiriháttar hausverkur, þá er þetta fljótt að rifjast upp. Á bak við hvert par liggur mikil vinna og maður hefur þurft að berjast fyrir að ná þeim í gegnum ferlið.“

Þeir sem þekkja skóna frá Kron by KronKron vita að um einstaka skó er að ræða, oftar en ekki litríka þar sem ólíkar áferðir spila saman. „Þetta eru flóknir skór og það liggur gífurleg vinna á bak við hvert og eitt par. Þannig að það er svolítið magnað að sjá þetta,“ útskýrir Hugrún sem var búin að taka um 40 prósent af þeim skóm sem verða á sýningunni upp úr kössum þegar blaðamaður náði tali af henni.

Hugrún segir ástríðu fyrir sköpun hafa leitt þau áfram í þessi tíu ár.

Við höfum alltaf fylgt hjartanu. Við sköpum út frá tilfinningum og hönnunin okkar er aldrei tengd neinum tíðaranda né tísku. Þess vegna er ótrúlega ánægjulegt að skoða þetta aftur,“ segir Hugrún.

Hún tekur fram að þeir skór sem komu á markað fyrir 10 árum séu alveg jafn viðeigandi í dag eins og nýjustu skór þeirra. Hugrún kveðst vera ansi gáttuð þegar hún tekur upp úr öllum skó- kössunum.

„Það er alveg merkilegt að hafa virkilega náð að skapa og koma til lífs öllum þessum skóm. Flest öll þessi pör eru fyrir löngu uppseld og því langt síðan við höfum séð þau. Manni þykir ansi vænt um hvert einasta par og kemur því smá söknuður þegar maður sér gömlu félagana sem maður hafði fyrir að koma í heiminn. Í þennan tíma höfum við bara haldið ótrauð áfram án þess að líta mikið til baka. Þannig að þegar maður horfir fyrst núna til baka þá er þetta ótrúlega yfirþyrmandi og skemmtilegt.“

Áhugasömum er bent á að Undraveröld Kron by Kronkron verður opnuð á sunnudaginn klukkan 16.00 í Hönnunarsafni Íslands, Garðatorgi 1.


Tengdar fréttir

Kron fagnar tíu ára afmæli

„Við höfum alveg lifað tímana tvenna í búðarrekstri í miðbænum. Bæði kreppuna í kringum aldamótin og svo núna," segir Hugrún en þau hjónin hafa nú rekið fyrirtækið sitt Kron í tíu ár.

Tímamót í Kronkron

Það eru mikil tímamót í versluninni Kronkron við Vitastíg þessa dagana. Í síðustu viku kom nýjasta stolt fyrirtækisins, fyrsta fatalína Kron by Kronkron, til landsins og fór í sölu, viðskiptavinum til mikillar ánægju.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.