Forréttindi að taka þátt í uppbyggingunni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. mars 2018 13:00 Gunnhildur Yrsa skoraði í fyrsta leik. vísir/getty
Það tók Gunnhildi Yrsu Jónsdóttir aðeins tvær mínútur og 13 sekúndur að skrá sig í sögubækur Utah Royals. Liðið er nýtt í bandarísku kvennadeildinni og lék sinn fyrsta leik í henni á laugardaginn þegar það sótti Orlando Pride heim. Eftir rúmlega tveggja mínútna leik stýrði Gunnhildur Yrsa fyrirgjöf Diönu Matheson í netið og skoraði fyrsta markið í sögu Utah Royals. Þetta sögulega mark íslensku landsliðskonunnar dugði þó ekki til sigurs því hin brasilíska Marta jafnaði metin í 1-1 með marki úr víti á 21. mínútu og þar við sat. „Þetta var mjög ljúft en ég hefði viljað fara heim með þrjú stig. En fyrsta stigið er komið í hús, og það á erfiðum útivelli,“ segir Gunnhildur Yrsa í samtali við Fréttablaðið.Stjörnum prýdd framlína Lið Orlando er gríðarlega vel mannað, sérstaklega í framlínunni, en í leiknum á laugardaginn byrjuðu þær Marta, Alex Morgan og Sidney Leroux saman frammi. Sú fyrstnefnda er oft talinn besti leikmaður allra tíma og þær tvær síðastnefndu eru meðal stærstu stjarna bandaríska landsliðsins. „Það var ágætt að halda þeim frá markinu. Þær skoruðu úr víti sem var aldrei víti,“ segir Gunnhildur Yrsa sem fékk ágætis færi til að tryggja Utah sigur í uppbótartíma en skot hennar fór yfir mark Orlando. Gunnhildur Yrsa lætur afar vel af lífinu hjá Utah og segir allar aðstæður hjá félaginu fyrsta flokks.Allar 100% atvinnumenn „Ég hef ekki yfir neinu að kvarta. Þetta er allt annað en ég er vön,“ segir Gunnhildur Yrsa sem hefur leikið í Noregi undanfarin ár. „Fagmennskan hérna er mikil og það er komið fram við mann eins og stjörnu. Það er allt mjög skipulagt. Allir leikmennirnir eru 100% atvinnumenn sem ég hef aldrei kynnst áður. Við búum allar á sama stað og aðstæðurnar eru frábærar. Þjálfarinn [Laura Harvey] er mjög góður.“ Gunnhildur segir fótboltann í bandarísku deildinni mun betri en í Noregi. „Þetta er allt annað og miklu betra. Þetta er miklu meira krefjandi. Maður fær varla tíma til að pústa. Það er mikið að gera allan leikinn, maður fær minni tíma með boltann og þarf alltaf að vera á tánum,“ segir Gunnhildur.Fengu leikmenn frá Kansas Utah Royals var stofnað 1. desember á síðasta ári. Nokkrum dögum áður var Kansas City lagt niður og fóru leikmenn liðsins til Utah. Meðal þeirra var Becky Sauerbrunn, annar af fyrirliðum bandaríska landsliðsins. „Þetta er bland af Kansas City og nýjum leikmönnum,“ segir Gunnhildur Yrsa. „Hálft byrjunarliðið í gær [fyrradag] lék með Kansas. Við erum með 9-10 landsliðskonur og það er mikil samkeppni í liðinu,“ segir Gunnhildur sem lék um tíma í háskólaboltanum í Bandaríkjunum og þekkir því ágætlega til vestanhafs. Utah leikur heimaleiki sína á Rio Tinto vellinum í Sandy, Utah, sem er einnig heimavöllur karlaliðs félagsins, Real Salt Lake sem leikur í MLS-deildinni vestanhafs. Fyrsti heimaleikur Utah er ekki fyrr en eftir landsleikjahléið, þann 14. apríl þegar liðið tekur á móti Chicago Red Stars. Næstkomandi föstudag á Utah leik gegn Houston Dash í 2. umferð deildarinnar. Gunnhildur Yrsa segir afar spennandi að taka þátt í því að byggja upp lið frá grunni. „Þetta eru mikil forréttindi að fá að taka þátt í þessari uppbyggingu. Það er svo mikill metnaður hérna sem gefur manni mikið,“ segir Garðbæingurinn að lokum.
Fótbolti Mest lesið Dómarar í ævilangt bann eftir kynlífsmyndband Fótbolti Jakob Birgisson fer á kostum sem Gummi Ben í Körfuboltakvöldi Extra Körfubolti Dunne telur að Heimir gæti misst starfið strax Fótbolti Safnaði kröftum á Íslandi eftir brottrekstur Fótbolti Ótrúleg vika í lífi Teits Örlygs: „Skiljanleg viðbrögð“ Körfubolti Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Enski boltinn Tárvot Ásta sátt í hjarta sínu með ákvörðunina Íslenski boltinn Myndasyrpa: Hulin andlit en líka bros á blönduðu grasi FH-inga Fótbolti Svona mark sést bara á nokkurra ára fresti: „Algjörlega einstakt“ Íslenski boltinn Sakar stjórn Fylkis um óheiðarleika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Grindavík - Valur | Nær Grindavík að hemja Cerino? Í beinni: Tindastóll - Stjarnan | Heimsækja nýliðana norður FH átti erfitt uppdráttar án lykilleikmanna „Röð tilviljana að HK sé ekki búið að fá víti í sumar“ „Getur ekki stjórnað áliti annarra“ Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Í tíu leikja bann fyrir „Jackie Chan“ ummælin Dagur og Messi tilnefndir til verðlauna Jakob Birgisson fer á kostum sem Gummi Ben í Körfuboltakvöldi Extra Myndasyrpa: Hulin andlit en líka bros á blönduðu grasi FH-inga Stjarnan fær akureyskan markvörð frá Grindavík Sakar stjórn Fylkis um óheiðarleika Ótrúleg vika í lífi Teits Örlygs: „Skiljanleg viðbrögð“ Dunne telur að Heimir gæti misst starfið strax Safnaði kröftum á Íslandi eftir brottrekstur Svona mark sést bara á nokkurra ára fresti: „Algjörlega einstakt“ Engir eftirmálar af látunum í Smáranum Vandaverk vængbrotinna FH-inga: „Gefum allt í botn“ Kristófer komst upp fyrir Denas í Fortnite Konaté mætti með nýstárlega grímu til æfinga Handrit Ástu Eirar fékk fullkomin endalok Ótrúlegir vítadómar í Þýskalandi: Tóku boltann upp tvisvar í sama leiknum Mældu tímann í Kórnum: „Mér finnst þetta alveg galið“ Dómarar í ævilangt bann eftir kynlífsmyndband Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Dagskráin í dag: Bónus deild kvenna og Lokasóknin Njarðvík semur við eina unga og efnilega UEFA hefur rannsókn vegna kvartana Tel Aviv Varði mark botnliðsins en bar samt af Daníel Ingi framlengir hjá Nordsjælland Sjá meira