Fótbolti

Juventus steig stórt skref

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn Juventus fagna marki Dybala.
Leikmenn Juventus fagna marki Dybala. vísir/afp
Juventus er með fimm fingur á ítalska meistaratitlinum eftir 3-1 sigur á Bologna í þriðju siðustu umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar.

Bologna komst yfir úr vítaspyrnu eftir hálftímaleik og þannig stóðu leikar þangað til á 52. mínútu en þá varð Sebastien De Maio fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Það var svo miðjumaðurinn Sami Khedira sem kom Juventus yfir á 63. mínútu og hinn skemmtilegi Paulo Dybala gerði út um leikinn sex mínútum síðar.

Juventus er með 91 stig á toppnum, sjö stiga forskot á Napoli sem spilar gegn Torino á morgun. Vinni Napoli ekki þar er Juventus orðið meistari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×