Lífið

Hvíti Riddarinn býður upp á 850 þúsund króna flöskuborð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tæplega ein milljón fyrir flöskuborð.
Tæplega ein milljón fyrir flöskuborð. vísir/getty
Skemmtistaðurinn Hvíti Riddarinn í Háholti í Mosfellsbæ býður upp á 850 þúsund króna flöskuborð en þetta kemur fram í stöðufærslu á Facebook-síðu Hvíta Riddarans.

Þar segir: „Það er föstudagur á morgunn og þetta má! Gerðu vel þig og þína á tónleikunum annað kvöld með flöskuborði.“

Tilefnið er Sumar- og próflokapartý en Hvíti riddarinn blæs til tónleika í kvöld með Emmsjé Gauta, Herra Hnetusmjör, Dabba T og Sprite Zero Klan.

Boðið er upp á fjögur mismunandi flöskuborð og má kynna sér þau hér að neðan:

Finlandia Vodka 1 lítri - 40.000 krónur

Bombay Sapphire 70 cl - 40.000 krónur

Bacardi Razz 1 lítri  - 50.000 krónur

Moët brut imperial 9 lítra - 850.000 krónur

Með flöskuborði er átt við ákveðið afmarkað svæði fyrir hóp þar sem hægt er að bjóða vinum og vandamönnum upp á ákveðið magn af víni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.